Matvælastofnun hafa borist ábendingar um að óviðkomandi aðilar gefi sig út fyrir að vera eftirlitsmenn á vegum stofnunarinnar. Um helgina gekk maður milli hesthúsa á Eyrarbakka og kynnti sig sem starfsmann Matvælastofnunar, en stofnunin áréttar að engir eftirlitsmenn hafi verið þar að störfum á þessum tíma.
Stofnunin segir málið ekki einsdæmi og beinir því til umráðamanna dýra að vera á verði gagnvart háttalagi sem þessu.
Í tilkynningu frá MAST eru þeir hvattir til að hika ekki við að óska eftir að fá að sjá starfsskírteini þeirra sem segjast vinna fyrir stofnunina.
„Verði fólk vart við aðila sem gefa sig út fyrir að vera starfsmenn Matvælastofnunar án tilskilinna heimilda er það vinsamlegast beðið um að hafa tafarlaust samband við stofnunina og, eftir atvikum, tilkynna atvikið til lögreglu.“