Rússar gerðu stærstu árás á Kænugarð frá upphafi stríðsins
Að minnsta kosti 17 létu lífið í árásinni auk þess sem fjöldi fólks missti heimili sín. „Ég veit ekki hvað ég á að gera núna,“ sagði 32 ára gömul móðir sem missti heimilið sitt í árásinni.
Rússland gerði í nótt umfangsmestu loftárás sína á Kænugarð frá upphafi innrásarinnar í Úkraínu, að sögn borgarstjórans í höfuðborginni. Í árásinni, sem stóð yfir í nokkrar klukkustundir, voru drónar og eldflaugar notaðar gegn borgarbúum, með þeim afleiðingum að minnst 17 létust, auk þess sem fjölbýlishús skemmdust eða eyðilögðust.
Í Moskvu lýsti Kreml því yfir að Rússar hygðust auka enn frekar „þrýstinginn“ á stjórnvöld í Kænugarði. Á sama tíma leituðu björgunarsveitir í rústum bygginga að eftirlifendum.
Helsti utanríkismálafulltrúi Evrópusambandsins lagði til nýjar refsiaðgerðir gegn Rússlandi, en forseti Úkraínu, Volodymyr Zelensky, óskaði eftir því við Bandaríkin að Úkraína fengi leyfi til að framleiða Patriot-loftvarnareldflaugar innanlands til að styrkja loftvarnir landsins.
Rússland hefur reglulega beitt eldflaugum og drónum gegn úkraínskum borgum frá því innrásin hófst fyrir rúmum fjórum árum. Stríðið er orðið að mannskæðustu átökum í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar.
Miklar sprengingar um alla borg
Blaðamenn AFP í mið- og austurhluta …