Þetta segir í tilkynningu á vef Matvælastofnunar en þar kemur fram að stofnunin hafi fengið ábendingar um mann sem gekk milli hesthúsa á Eyrarbakka um helgina og kynnti sig sem starfsmann stofnunarinnar.
MAST segir enga eftirlitsmenn á sínum vegum hafa verið á svæðinu á umræddum tíma. Viðkomandi hafi ekki verið á vegum stofnunarinnar og hafi engar heimildir til eftirlits.
Atvik af þessu tagi séu ekki einsdæmi og Matvælastofnun beinir því til umráðamanna dýra, sem og almennings alls, að sýna aðgát gagnvart háttalagi sem þessu. Þeir eru hvattir til þess að óska eftir að starfsskírteini eftirlitsaðila leiki minnsti vafi á auðkenni viðkomandi.