„Slær frá sér eins og blindur risi,“ sagði Bogi Ágústsson um Vladimír Pútín og árásir Rússa á Úkraínu í hefndarskyni fyrir árásir Úkraínumanna á olíuiðnað Rússa. Rússar gerðu gríðarlega harðar loftárásir með flugskeytum og drónum á Kyiv, höfuðborg Úkraínu. Ekki er talinn vafi á að með þessu hafi Pútín og stjórn hans viljað svara árásum Úkraínumanna sem hafa valdið miklu tjóni á olíuinnviðum Rússa.
Eldsneytisskortur í Rússlandi
Árásir Úkraínumanna hafa bitnað hart á eldsneytisframleiðslu í Rússlandi. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á Krímskaga sem Rússar innlimuðu 2014. Bensín og dísilolía eru skömmtuð sums staðar í Rússlandi og langar biðraðir hafa myndast við bensínstöðvar. Þá hafa árásir Úkraínu leitt til verðhækkunar á eldsneyti og komið illa við olíuútflutning Rússa sem er helsta tekjulind þeirra. Árásirnar hafa einnig fært stríðsátökin nær almennum borgurum í Rússlandi sem hingað til hafa lítið orðið varir við stríðið í daglegu lífi.
Pútín viðurkenndi skort
Vladimír Pútín Rússlandsforseti viðurkenndi um helgina að skorturværi á eldsneyti. Hann boðaði auknar loftvarnir við Moskvu í sjónvarpsviðtali en Úkraínumenn hafa ítrekað ráðist með drónum á olíumannvirki nærri borginni. Vestrænir hernaðarsérfræðingar segja að Rússum gangi illa á vígvellinum, sókn þeirra hafi að mestu stöðvast og mannfall sé afar mikið.
Starmer herskár í þinginu
Meginefni samtals Boga við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur í Heimsglugganum var um bresk stjórnmál. Keir Starmer lætur senn af embætti forsætisráðherra og allar líkur eru á að Andy Burnham taki við. Starmer tók óvinsælar ákvarðanir og þurftu oft að breyta um stefnu. Chris Mason, stjórnmálaritstjóri breska ríkisútvarpsins, skrifaði að Starmer hefði glataði trausti þingmanna Verkamannaflokksins
Varði sig og gagnrýndi andstæðinga harðlega
Starmer þótti óvenjuröggsamur í fyrirspurnartíma forsætisráðherra í þinginu í gær og lét andstæðinga Verkamannaflokksins fá það óþvegið. Starmer varði gjörðir ríkisstjórnar sinnar og sagði hana hafa tekið við afar slæmu búi frá Íhaldsflokknum. Engu að síður hefði stjórn Verkamannaflokksins tekist að stytta biðlista í heilbrigðiskerfinu, efla hróður Breta á alþjóðavettvangi, stórefla varnir og koma efnahagslífinu í gang svo að nú væri meiri hagvöxtur í Bretlandi en nokkru öðru G7-ríkjanna. Fréttaskýrandi dagblaðsins Guardian skrifaði að Starmer hefði verið nístandi og hvassyrtur og frammistaða hans betri en fyrr.
David Clayton-Thomas látinn
Í lokin var stuttlega minnst bresk-kanadíska söngvarans David Clayton-Thomas sem lést í síðustu viku. Hann öðlaðist heimsfrægð með hljómsveitinni Blood, Sweat & Tears. Hljómsveitin naut mikilla vinsælda í kringum 1970. Við heyrðum Clayton-Thomas syngja brot úr laginu You've Made Me So Very Happy.