Mikil ringulreið skapaðist víða um Frakkland þegar þúsundir manna flykktust í Lidl verslanir til að kaupa loftkælingar og viftur fyrir helgina, en spáð er allt að 37 stiga hita á mörgum svæðum landsins. Í sumum verslunum brutust út slagsmál, lögregla var kölluð á vettvang og hurðir skemmdust þegar mannfjöldinn reyndi að komast inn.
Ástæðan var sérstakt tilboð Lidl sem auglýsti um 200 þúsund viftur og loftræstitæki til sölu á fimmtudag. Fólk byrjaði að safnast saman fyrir utan verslanir löngu fyrir opnun og þegar dyrnar opnuðust brutust víða út átök. Á myndskeiðum sést fólk rífast, öskra og jafnvel slást um síðustu tækin.
Fights have broken out at Lidl stores across France over the limited availability of air conditioning units. Just the absolute state of them. pic.twitter.com/zygBx0u9l6
— Ian Miles Cheong (@ianmiles) July 2, 2026
Hurðir brotnuðu og lögregla greip inn í
Í úthverfinu Nanterre söfnuðust yfir hundrað manns fyrir utan eina Lidl verslun og skemmdir urðu á innganginum þegar fólksfjöldinn ruddi sér leið inn. Samkvæmt frönskum fjölmiðlum komust aðeins um tíu viðskiptavinir út með tæki eftir að rifrildi og átök brutust út.
Svipaðar aðstæður mynduðust í Saint Germain-en-Laye þar sem hillur tæmdust á örfáum mínútum. Þar voru aðeins um 50 viftur í boði og engar loftkælingar, þrátt fyrir mikla eftirspurn. Lögreglan þurfti einnig að grípa inn í þegar fólk barðist um síðustu kassana.
Í Saint-Germain-lès-Corbeil í Essonne var verslunin yfirfull af fólki og nærri 200 bílar tepptu umferð í nágrenninu. Lögregla var kölluð á staðinn til að ná stjórn á ástandinu.
🇫🇷 The Lidl store in France announced discounts on air conditioners and fans, which sparked a massive crowd of people literally tearing the doors off the store, pushing each other off escalators, and getting into fights just to buy a fan at a discount. pic.twitter.com/P9t7Yeszkm
— Visegrád 24 (@visegrad24) July 2, 2026
Gagnrýna Lidl harðlega
Margir viðskiptavinir sögðu Lidl hafa vanmetið aðsóknina og ekki undirbúið sig nægilega.
„Þetta er fáránlegt. Fólk er orðið gjörsamlega galið,“ sagði einn viðskiptavinur við franska fjölmiðla. Annar sakaði verslunarkeðjuna um að hafa vitað fyrirfram að ringulreið myndi skapast án þess að gera viðeigandi ráðstafanir.
Á samfélagsmiðlum kvörtuðu margir einnig yfir því að sumar verslanir hefðu aðeins fengið eitt loftræstitæki eða jafnvel ekkert. Sumir sögðu hundruð manna hafa beðið í röð fyrir aðeins örfá tæki og einn viðskiptavinur hélt því fram að táragasi hefði verið beitt þegar troðningur skapaðist í einni verslun í París.
Fights are breaking out in stores across #France as customer scramble to buy fans and air conditioners during the country’s extreme heat wave. Over half the country is under red alerts, with temperatures exceeding 40°C in places. pic.twitter.com/m3NkMLfYmc
— Ian Collins (@Ian_Collins_03) June 27, 2026