Enn ber mikið í milli eftir tveggja klukkustunda fund höfuðandstæðinganna Gadi Eisenkot, leiðtoga Yashar, og Benjamín Netanjahú, leiðtoga Likud, í Tel Avív í morgun. Þeir eiga í viðræðum um myndun ríkisstjórnar.
Í sameiginlegri yfirlýsingu flokkanna kemur fram að fundurinn hafi verið málefnalegur og „báðir aðilar hafi reynt að brúa djúpa gjá milli flokkanna.“ En samkvæmt ísraelskum miðlum ber enn mikið í milli og ekki búið að ákveða annan fund.
Eins konar þjóðstjórn er þekkt stærð
Í gærkvöld tilkynnti Netanjahú, sem er starfandi forsætisráðherra, að hann væri tilbúinn til þess að leyfa Eisenkot að verða forsætisráðherra í eins konar þjóðstjórn.
Slík stjórn er þekkt fyrirbæri í Ísrael og hefur oft verið gripið til þess að mynda þannig stjórnir, bæði þegar landið stendur frammi fyrir einhvers konar ógn eða þegar upp kemur pólitísk pattstaða.
Yfirleitt eru það þá stærstu flokkarnir sem tala sig saman og leiðtogar þeirra skiptast á að vera forsætisráðherrar. Í þessu tilviki yrði þá Eisenkot fyrstur en Netanjahú myndi taka við eftir tvö ár.
Smærri flokkar sem eru utan blokka, þær eru tvær í Ísrael núna, Netanjahú-blokkin og Eisenkot-blokkin, eru yfirleitt skildir eftir.
Gæti dregið til tíðinda á morgun?
Einu flokkarnir sem eru utan blokka núna eru arabísku flokkarnir tveir, sem fengu metkosningu eða samtals 19 þingmenn af 120.
Eisenkot hefur síðan í lok október verið að reyna að mynda stjórn. Hann hefur til 6. desember en getur beðið forsetann um 14 daga til viðbótar. Yashar, flokkur Eisenkot, bað í dag samstarfsflokka sína og arabísku flokkana tvo að gæta þess að full mæting verði í þingið á morgun, sem gefur til kynna að þar gæti dregið til tíðinda.