Ákvörðun Norðurorku um að hækka gjaldskrá ekki umfram 2,5% á næsta ári hefur veruleg áhrif á áætlaðar tekjur fyrirtækisins. Fyrirtækið leitar leiða til hagræðingar og hægir á framkvæmdum.
Stjórn Norðurorku samþykkti í október að hækka gjaldskrá sína um allt að 7% - þvert á vilja sveitarfélaganna sem eiga fyrirtækið. Bæjarstjóri Akureyrar gagnrýndi gjaldskrárhækkunina en Akureyri á 98% hlut í Norðurorku.
Nokkrum dögum síðar var þessi hækkun dregin til baka þar sem sveitarfélögin eru öll þátttakendur í átaki að hækka gjaldskrár ekki meira en 2,5% til að halda niðri verðbólgu og tryggja forsendur kjarasamninganna.
Í ljósi þessa var fjárfestingar- og fjárhagsáætlun fyrirtækisins tekin til skoðunar. Ný áætlun gerir ráð fyrir að hægja þurfi á framkvæmdum og leita hagræðingartækifæra. Þá eykst lántökuþörf félagsins.
„Við erum bara að skoða reksturinn um þessar mundir, hvar getum við mögulega klipið af kostnaði hjá okkur til að hagræða. Niðurstaðan varð sú að fresta fjárfestingum í virkjun borholunnar út í Ytri-Haga sem við vonuðumst til að myndi klárast í árslok 2027 en frestast fram á seinnipart 2028,“ segir Eyþór Björnsson, forstjóri Norðurorku.
Heitt vatn af skornum skammti
RÚV flutti fréttir af heitavatnsskorti á Akureyri í síðustu viku og að þörfin fyrir meira heitt vatn á svæðinu væri mikil. Ein af hagræðingaraðgerðunum er að fresta framkvæmdum við heitavatnsborholu á Ytri-Haga.
„Þörfin fyrir heitt vatn er talsvert mikil og er alltaf vaxandi og við þurfum að hreyfa okkur hratt. Þannig þetta er í sjálfu sér ekki heppilegt fyrir hitaveituna að þetta frestist.“
Norðurorka stefnir á að skila rekstrarafgangi upp á rúmlega 800 milljónir króna á árinu, og hagnaður fyrirtækisins árið 2025 var 887 milljónir og 782 milljónir árið 2024.
„Hagnaðurinn segir einn og sér ekki þá sögu sem skiptir máli í þessu. Það er alltaf gott að skila hagnaði en það eru ekki fjármunir sem við getum gripið í og notað í fjárfestingar. Það er veltufé frá rekstri, í sjóðstreyminu.“