Kosið var í þjóðaratkvæðagreiðslu í Sviss í dag um það hvort slaka ætti á reglum um útflutning á vopnum. Þar tókust á annars vegar hefðir landsins um hlutleysi og hins vegar öryggissjónarmið og vopnaiðnaður sem veltir milljörðum dollara á ári.
Kjörstöðum var lokað klukkan 11:00 að íslenskum tíma og kusu langflestir landsmenn í gegnum póst. Útgönguspár benda til þess að að breytingin verði samþykkt.
Samkvæmt núgildandi reglum í Sviss eru vopn ekki seld til landa sem þegar standa í átökum. Þá er nauðsynlegt fyrir önnur lönd að bera útflutning á svissneskum vopnum undir ríkisstjórn Sviss áður en þau eru flutt úr landi.
Gagnrýnendur telja vegið að hlutleysi landsins
Ríkisstjórn Sviss telur hins vegar að innrás Rússa í Úkraínu hafi breytt öryggissjónarmiðum í Evrópu. Þingið slakaði á takmörkununum á síðasta ári með stuðningi ríkisstjórnarinnar. Vinstrisinnaðir stjórnmálaflokkar og frjáls félagasamtök knúðu þó fram þjóðaratkvæðagreiðslu um málið með því að nýta sér beint lýðræðiskerfi Sviss. Rökstuðningur þeirra var að lagabreytingin stefndi svissnesku hlutleysi í hættu.
Monika Maire-Hefti, forseti líknarsamtakanna Caritas í Sviss, sagði að breytingin myndi auka verulega hættuna á því að svissnesk vopn enduðu með óbeinum hætti í borgarastyrjöldum eða í höndum stjórnvalda sem brjóta gegn lögum og mannréttindum.
Stuðningsmenn breytinganna segja þó að hún viðhaldi samkeppnishæfni svissneskra vopnaframleiðenda.
Um 20 frjáls félagasamtök, þar á meðal Amnesty International í Sviss, hafa fordæmt það sem þau kalla „niðurrif helstu varna sem gilda um útflutning svissneskra vopna“.
Felur ekki í sér útflutning vopna til Úkraínu
Gagnrýnendur benda einnig á að tillagan feli ekki í sér neinar ráðstafanir til stuðnings Úkraínu, þrátt fyrir óskir frá nokkrum Evrópuríkjum frá því að innrás Rússa hófst árið 2022.
Efnahagsráðuneyti Sviss segir að hlutleysislög landsins komi í veg fyrir útflutning svissneskra vopna til Úkraínu. Þar sem Sviss viðhaldi viðskiptabanni á hergögn gagnvart Rússlandi geti landið ekki heldur útvegað slíkan búnað til Úkraínu.
Óbeinn flutningur vopna til Úkraínu yrði einnig áfram háður takmörkunum.
Samkvæmt Alþjóðlegu friðarrannsóknarstofnuninni í Stokkhólmi (SIPRI) var Sviss í 20. sæti yfir þær þjóðir sem flytja út vopn í heiminum árin 2021 til 2025. Það þýðir um 0,3% af heildarútflutningi í heiminum. Mikil aukning varð í útflutningi á vopnum til Þýskalands frá Sviss árið 2025.