Stakur sundmiði fyrir fullorðna kostar nú 1.500 krónur í Reykjavík en meirihlutinn vill að hann kosti 2.100 krónur frá 8. desember. Þannig færist miðaverðið nær því sem hver heimsókn er talin kosta borgina, eða 2.150 krónur.
Bjarni Guðjónsson, formaður íþrótta- og útilífsráðs, sagði í samtali við Vísi þegar fréttir voru fluttar af þessari hækkun að langflestir Reykvíkingar sem sæki laugarnar eigi sundkort. Hækkunin lendi því fyrst og fremst á ferðamönnum.
Hanna Katrín bendir á að skattgreiðendur standi undir uppbyggingu innviða sem ferðamenn nýta.
„Það er bara eðlilegt að ferðamenn taki þátt í þessum kostnaði,“ segir Hanna Katrín í samtali við fréttastofu.
Baðlónin þurfa að ákveða hvað fer út í verðlagið
Á Alþingi snýst deilan um áform ríkisstjórnarinnar um að hækka virðisaukaskatt á aðgang að baðlónum úr ellefu prósentum í 24 prósent. Borgin ræður sjálf hvað sundmiðinn kostar en baðlónin þurfa hins vegar að ákveða hvort þau taki skattahækkunina á sig eða velti henni yfir á gestina.
Árni Helgason þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur bent á að lónin keppi um ferðamenn við áfangastaði erlendis. Ingibjörg Isaksen þingmaður Framsóknar segir hætt við að Vök við Egilsstaði þurfi að loka yfir veturinn komi til hækkunarinnar.
Fréttastofa spurði Hönnu Katrínu hvort munurinn á hækkununum tveimur réttlætti ólíka afstöðu flokkanna.
„Útgangspunkturinn er raunverulega bara þessi. Við erum með þennan, þessa mikilvægu atvinnugrein. Við viljum geta tekið á móti þessum ferðamönnum sem hingað koma, við viljum geta fjölgað þeim, við viljum geta gert þetta sómasamlega og án þess að það skapi enn aukið álag á skattgreiðendur á Íslandi,“ segir Hanna Katrín.
Telur flest baðlón ráða við hækkunina
Hanna Katrín hefur sagt á Alþingi að hún telji flest baðlón ráða við hækkunina vegna þess hve vinsæl þau séu meðal ferðamanna.
„En ég veit auðvitað hvernig rekstur þessara fyrirtækja gengur rétt eins og annarra. Þetta eru, þetta eru uppgjörstölur og þetta gengur mjög vel. Þetta er mjög vinsælt. Þetta hefur skapað svona nýja vídd í baðlónin, nýja vídd í ferðaþjónustu á Íslandi. En enn sem komið er koma auðvitað langflestir gestir hingað til landsins vegna náttúrunnar okkar. En þar erum við með þetta náttúruinnviðagjald af því það skapar ákveðið álag á þá staði. En ég fagna auðvitað þessari viðbót sem hefur verið byggð upp af miklum dugnaði sem eru baðlónin okkar og það sýnir það að þessi, þessar svona vellíðunarferðaþjónustur þar sem við erum eiginlega, myndi ég segja, frumkvöðlar í að byggja upp á þann hátt sem verið er að gera. Ég hef mikla trú á þessari grein ferðaþjónustunnar,“ segir Hanna Katrín.