Myndskeiðin sýna sjó flæða inn um lúgu stjórnborðsmegin á skut skipsins.
Myndböndin voru tekin af áhafnarmeðlimum Jökuls ÞH skömmu áður en skipið sökk. Áhafnarmeðlimir virðast út frá myndefninu dæma ekki getað lokað lúgunni. Hún hafi hætt að virka.
Myndböndin má sjá í spilaranum hér að neðan. Fréttastofa hefur fengið staðfest að ekki sést til þeirra sem fórust í myndskeiðinu. Hljóð hefur verið tekið af myndskeiðunum og afmá andlit þeirra sem eru í rýminu þegar sjórinn flæðir inn.
Komin með skýra mynd af atburðarásinni
Lögreglan á Austurlandi og Rannsóknarnefnd samgönguslysa fara með rannsókn þess þegar að Jökull ÞH sökk á miðvikudaginn. Þrír fórust og fjórtán var bjargað. Rannsóknin hófst á miðvikudagskvöldið.
Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, segir rannsókninni miða vel. Ekki sé búið að ræða við skipverjana sem voru um borð en það verði gert í vikunni. Til þessa hafi lögreglan verið að safna gögnum. Samkvæmt heimildum fréttastofu er myndefnið sem sést að ofan á meðal gagna málsins.
„Hvað er í gangi?“
Myndefnið er í nokkurri dreifingu en myndbandið að ofan er sett saman úr sex styttri myndskeiðum. Þau eru tekin upp í netageymslu skipsins og sýna, eins og áður segir, sjó flæða inn um lúgu þar sem netin eru lögð út.
„Hún virkar ekki! Hún fer ekkert meira en þetta,“ heyrist í einum áhafnarmeðlimnum kalla á meðan sjór flæðir inn. Fréttastofa hefur borið þessi orð undir sjómenn með töluverða reynslu af því að vera á sjó. Þeir leggja þann skilning í orðin að átt sé við lúguna sem stendur galopin. Svokallaður glussutjakkur, búnaðurinn sem er notaður til að loka lúgunni, virðist ekki virka.
Í myndbandinu má sjá hvernig sjór safnast á millidekkinu. Ekki liggur fyrir hvort lensidælur skipsins hafi virkað sem skyldi en það er meðal þess sem er til rannsóknar.
„Hvað er í gangi?“ segir annar áhafnarmeðlimur.
Þegar netin í geymslunni eru komin á flot og farin að færast um rýmið heyrist í einum skipverja spyrja hvort aðrir áhafnarmeðlimir hafi verið byrjaðir að leggja netin. Því er svarað neitandi. „Sem betur fer ekki,“ bætir annar við.
Í seinni hluta myndskeiðisins má sjá hvernig netin eru komin á flot og vagga til og frá í rýminu.
„Veggurinn brotnaði. Díses kræst,“ segir einn skipverjanna en þá er sjórinn búinn að ná svipaðri hæð og lúgan og má nánast segja að öldugangur sé inni í netageymslu skipsins.
Þegar skipstjórinn á Jökli tilkynnti neyðarástand til Landhelgisgæslunnar talaði hann um að lúga hefði brotnað aftan á skipinu.
Kambur fórst er sjór flæddi inn um lúgu
Það sem ber fyrir augu í myndskeiðinu minnir óneitanlega á það sem gekk á þegar skipið Kambur sökk á sínum tíma. Sjór komst inn um lúgu á bakborðshlið Kambs þegar áhöfnin var að reyna að draga bauju um borð en skipinu hvolfdi á mjög stuttum tíma og það sökk svo í kjölfarið.
Kambur fórst við Færeyjar árið 2024 við svipaðar kringumstæður og voru þegar Jökull sökk. Kambur var byggt í Noregi líkt og Jökull ÞH og Malakhit, sem var systurskip Jökuls og sökk fyrir um tuttugu árum.
Í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa í Færeyjum kemur fram að sjórinn sem fór um borð dró verulega úr stöðugleika skipsins, svo hallinn jókst hratt og enn meiri sjór flæddi þar inn. Keðjuverkun myndaðist og gat áhöfnin ekki stöðvað hana.
Þá var nefnt að baujugeymsla Kambs hafi verið staðsett svo að ef sjór færi þangað gæti það haft mikil áhrif á stöðugleika skipsins og að ekki hafi verið nægileg vörn gegn því að sjór sem kæmist inn í rýmið, kæmist þaðan aftur með auðveldum hætti.
Enn fremur segir rannsóknarnefndin að tiltölulega lítið magn sjávar hafi haft meiri áhrif á stöðugleika Kambs en áhöfnin áttaði sig á. Nefndin segir að „samspil ástands sjávar, veðurs og stöðugleika skipsins“ hafi leitt til þess að Kambur sökk.
Í skýrslunni kemur fram að klukkan 18.30 þann 6. febrúar 2024 hafi skipið fengið á sig tvær öldur á bakborða og inn um baujulúguna. Við það flæddi mikill sjór inn í baujurýmið.
Klukkan 18:56 er sent út neyðarkall, þar sem skipstjórinn mat stöðuna svo að þeim myndi ekki takast að rétta skipið af. Í millitíðinni hafði áhöfnin reynt að loka lúgunni, sem heppnaðist ekki. Hún festist og sjór flæddi inn, þar til lúgan var komin undir sjávarmál.
Skipstjórinn reyndi að setja skipið á fulla ferð áfram en það skilaði ekki árangri. Einungis tíu mínútum eftir að neyðarkallið var sent út var áhöfninni skipað að yfirgefa skipið.