Kom sjálfur að skipulagi eigin minningartónleika - Vísir
Kom sjálfur að skipulagi eigin minningartónleika - Vísir
📅 2026-11-29 14:32:38👁️ 4 lesið
Goðsögnin Björgvin Helgi Halldórsson – sem kallaði sig Bó þegar svo bar undir – var borinn til grafar þann 28. apríl síðastliðinn og nú, sjö mánuðum síðar, voru í Eldborgarsal Hörpu haldnir tónleikar þar sem einvala lið tónlistarfólks kom saman og heiðraði minningu stórsöngvarans.
Tónleikarnir báru heitið Björgvin Halldórsson – maður sviðs og söngva en í færslu sem var birt á Facebook-reikningi Senu kemur fram að þennan dag hafi átt að halda afmælistónleika en ekki minningartónleika.
„Undirbúningur var hafinn, hugmyndir komnar af stað og Björgvin sjálfur hafði komið að skipulaginu – meðal annars með því að samþykkja plakat tónleikanna,“ segir í færslunni.
Í samráði við fjölskyldu Björgvins hafi verið tekin sú ákvörðun að halda áfram með hugmyndir sem þegar hafi verið komnar fram. Eldborg hafi verið bókuð og plakatið sem Björgvin hafði verið búinn að samþykkja nýtt sem og vinna sem var vel á veg komin við val á lögum og söngvurum, er fram kemur á vef Senu.
Úr varð að á annan tug söngvara steig á svið í gærkvöldi, laugardaginn 28. nóvember, ásamt Karlakórnum Fóstbræðrum, bakraddasöngvurum, þéttskipaðri hljómsveit og leynigestum. Þá verður leikurinn endurtekinn í kvöld, sunnudaginn 29. nóvember, í Hörpu.
Vísir sendi að sjálfsögðu ljósmyndara á svæðið og má líta nokkrar af þeim myndum sem hann smellti af hér fyrir neðan.
Svala Björgvins flutti lagið „Skýið“, sem faðir hennar Björgvin samdi árið 1978 og kom út á plötunni „Ég skal syngja fyrir þig“, eftirminnilega í jarðarför föður síns.Vísir/Viktor FreyrSigga Beinteins, Sigríður Beinteinsdóttir, og Björgvin Halldórsson störfuðu mikið saman í gegnum tíðina, bæði í dúettum, á jólatónleikum og á plötum.Vísir/Viktor FreyrMeðal þeirra sem gerðu helstu perlum íslenskrar dægurtónlistar skil á tónleikunum voru bakraddasöngvararnir Andrea Ingvarsdóttir, Kristján Gíslason og Íris Lind.Vísir/Viktor FreyrKerti voru tendruð á sviði Eldborgar á tónleikunum en Ásgeir Trausti kom fram á jólagestum Björgvins árið 2024, sem voru þeir síðustu þar sem Björgvin var gestgjafi. Vísir/Viktor Freyr„Þetta verður kvöld þar sem við komum saman, minnumst hans og fögnum um leið þeirri ótrúlegu tónlistararfleifð sem hann skilur eftir sig,“ sagði Krummi í myndbandi sem deilt var á samfélagsmiðlum í sumar.Vísir/Viktor FreyrÞað var sannkallað landslið íslenskra tónlistarmanna sem steig á stokk til heiðurs Björgvini Halldórssyni um helgina. Frá v. Sigríður Thorlacius, Sigga Beinteins, Svala, Ragnheiður Gröndal og GDRN. Vísir/Viktor FreyrBjörgvin fæddist 16. apríl 1951 í Hafnarfirði og lést 9. apríl síðastliðinn. Hann skilur eftir sig djúp spor í íslenskri menningarsögu, átti glæstan sólóferil og söng með hljómsveitum á borð við Ævintýri, Brimkló, Ðe lónlí blú bojs, HLH-flokknum og Sléttuúlfunum.Vísir/Viktor FreyrStefán Hilmarsson frumflutti lagið „Hringd'í mömmu“ af plötunni Ár & dagar í vor en upphaflega átti Björgvin Halldórsson að syngja það með honum.Vísir/Viktor FreyrÁ afmælistónleikum Björgvins árið 2011 fluttu þeir feðgar, hann og Oddur Hrafn Björgvinsson, betur þekktur sem Krummi, lagið „You belong to me“. Krummi flutti lagið á minningartónleikunum og söng undurfallega: „I'll be so alone without you, maybe you'll be lonesome too and blue.“Vísir/Viktor Freyr
„Ég var með konunni minna og barni og það sluppu allir þannig séð,“ segir Haukur Bent Sigmarsson í samtali við blaðamann, þau fjölskyldan hafi farið í...
Gadi Eisenkot, leiðtogi Yashar-flokksins í Ísrael, hefur hafnað tilboði Benjamíns Netanjahús, starfandi forsætisráðherra, um að mynda saman stjórn og ...
Sunna Ben, plötusnúður og ljósmyndari, vill að lög verði sett sem takmarki birtu bílljósa. Orðið sé erfitt að keyra á Íslandi í myrkri.„Demókratar í B...
Kjörsókn í þingkosningunum á Spáni um miðjan dag var mun meiri en var í síðustu þingkosningum og að sögn þarlendra fjölmiðla er þetta mesta kjörsókn í...
Gefin var út appelsínugul veðurviðvörun í gærkvöld fyrir Norðurland vestra. Þrátt fyrir mikinn vindstyrk virðist allt hafa verið með kyrrum kjörum á N...
Kelly Osbourne, tískuhönnuður og dóttir hins látna rokksöngvara Ozzy Osbourne, hefur tjáð sig um skilnaðinn við Sid Wilson, fyrrverandi meðlim Slipkno...
Myndskeiðin sýna sjó flæða inn um lúgu stjórnborðsmegin á skut skipsins. Myndböndin voru tekin af áhafnarmeðlimum Jökuls ÞH skömmu áður en skipið sökk...
Formaður Landssambands lögreglumanna, Fjölnir Sæmundsson, segir albanska glæpahópa á Íslandi hleypa íslenskum afbrotamönnum inn í skipulagt brotastarf...
Rannsóknarstjóri hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa segir alla þætti skipsskaðans þegar Jökull ÞH sökk á miðvikudag til skoðunar, þar á meðal björgunar...
Ákvörðun Norðurorku um að hækka gjaldskrá ekki umfram 2,5% á næsta ári hefur veruleg áhrif á áætlaðar tekjur fyrirtækisins. Fyrirtækið leitar leiða ti...
A Christmas ice rink has opened in Santa Úrsula in the north of Tenerife today (Sunday 29th November), offering families a festive attraction in the r...
Drífa Snædal talskona Stígamóta segir að löggjafinn þurfi nauðsynlega að breyta lögum svo að hún fangi kynferðisbrot í hinum stafræna heimi. Ofbeldi a...
Kostnaður við nýjan vef Veðurstofunnar nær sjöfaldast – úr 67 milljónum í 446 milljónir Fréttin29. nóvember 2026Fjármál, Innlent, StjórnsýslaLeave a C...
Enn ber mikið í milli eftir tveggja klukkustunda fund höfuðandstæðinganna Gadi Eisenkot, leiðtoga Yashar, og Benjamín Netanjahú, leiðtoga Likud, í Tel...
Íbúum fjölgar stöðugt á Selfossi og reyndar í allri Árborg. Mikið álag er á hitaveitunni, sérstaklega í kuldatíð, og því nauðsynlegt að finna meira af...
Stakur sundmiði fyrir fullorðna kostar nú 1.500 krónur í Reykjavík en meirihlutinn vill að hann kosti 2.100 krónur frá 8. desember. Þannig færist miða...
Alvarlegir annmarkar á hæfismati dómara við Alþjóðlega sakamáladómstólinn – kvartað undan helmingi frambjóðenda Fréttin29. nóvember 2026Dómur, ErlentL...
Rannsóknir á stofni íslensku sumargotssíldarinnar var helsta verkefni vísindamanna Hafrannsóknarstofnunar í árlegum haustleiðangri sem lauk nýlega. Un...
Heimildarmyndin Heal, sem er um hálftími á lengd, býður upp á innsýn inni í hugarheim kóngafólksins sem var áður óþekkt en hingað til hafa meðlimir br...
Kosið var í þjóðaratkvæðagreiðslu í Sviss í dag um það hvort slaka ætti á reglum um útflutning á vopnum. Þar tókust á annars vegar hefðir landsins um ...
Íslandsferð breska grínistans Alan Carr endaði sem sár vonbrigði. Carr kom til Íslands til að sjá norðurljósin en það fór ekki eins og hann hafði ætla...
Út eru komin merk verk í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar. Bókin Lækningalán Jóns Jónssonar prests og læknis í Árskógi og á Grenjaðarsta...
Allt of rólegt er yfir hlutabréfamarkaði á Íslandi. Fyrir því eru ekki gild rök.Hlutabréfamarkaðir á Vesturlöndum hafa dafnað mun betur en hér á umlið...
Samkvæmt heimildum fréttastofu eru myndbandsupptökur frá aðdraganda þess að skipið sökk meðal gagna sem lögregla hefur sankað að sér. Myndbönd frá sly...
Þetta kom fram í máli þeirra Fjölnis Sæmundssonar, formanns Landsambands lögreglumanna, og Hildigunnar Einarsdóttur lögreglukonu, sem voru gestir Páls...
Þetta skrifar Linda Björk Markúsardóttir, móðir hins 22 ára Markúsar Más Eldjárns Arnórssonar sem var bjargað þegar Jökull ÞE 299 fórst austur af land...
Erfitt reynist að ná í Katrínu til að fá hana í viðtal, hún er önnum kafin kona og ekki með fjölda fólks í vinnu eins og hún átti lengi að venjast. Ka...
Það hefur enginn hagvöxtur verið á Íslandi síðastliðin þrjú ár. Það þrengir að í hagkerfinu en slíkt ástand getur eflt bókina. Það sýndi sig í Covid o...
Dæmi eru um að fólk hafi búið við stöðugt partýstand og neyslu í fjölbýlishúsum í áraraðir áður en það leitar sér aðstoðar. Þá koma reglulega upp dæmi...
Engin útköll voru í gær og í nótt vegna veðurs þrátt fyrir appelsínugular veðurviðvaranir á Norðurlandi.Gular og appelsínugular veðurviðvaranir tóku g...
Sigurður Sigurðsson – eða Siggi eins og hann er kallaður – hefur safnað steinum hálfa ævina. „Ég byrjaði þegar ég var fjögurra ára þannig að ég er búi...
Fréttastofa Breska ríkisútvarpsins greinir frá. Kosningarnar fara fram í skugga mikilla mótmæla á Spáni vegna stöðunnar á húsnæðismarkaðnum. Mikil rei...
Í nýjasta þætti Veiðarinnar með Gunnari Bender er Haraldi Eiríkssyni fylgt eftir við veiðar í Hítará á Mýrum. Í veiðinni minnist Haraldur látins vinar...
299 fréttir um hjálparúrræði fyrir konur og tvær um karlaathvarf. Það er niðurstaða talningar Samtaka um karlaathvarf á fréttum RÚV frá október 2021 t...
Kjörstaðir voru opnaðir á Spáni í morgun í þingkosningum þar sem meira en 38 milljónir manna eru á kjörskrá.Kannanir benda til þess að stjórn Pedro Sa...
Ísak Leó Freysson og kærasti hans og nafni Ísak Leon Júlíusson, þremur árum eldri, settust niður með blaðamanni. Kærastinn Ísak Leon er í meistaranámi...
Feðginin verða meðal gesta í Sprengisandi á Bylgjunni sem hefst klukkan tíu í dag. Fyrstur texta er þó Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og þingma...
Feðginin verða meðal gesta í Sprengisandi á Bylgjunni sem hefst klukkan tíu í dag. Fyrstur gesta er þó Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og þingma...
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að par hafi verið handtekið í Grafarholti eða Úlfarsárdal vegna óspekta...
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að par hafi verið handtekið í Grafarholti eða Úlfarsárdal vegna óspekta...