Vladimír Pútín forseti Rússlands keppti í íshokkíi með gömlum rússneskum goðsögnum í íþróttinni í Sochi árið 2019. Nokkuð sem hann gerði reglulega áður. Pútín átti stórleik og skoraði átta mörk en mætti reyndar lítilli mótstöðu. Eftir leikinn tók hann sigurhring, veifaði til áhorfenda – og datt svo kylliflatur á svellið.
Það má líta á þetta sem eins konar birtingarmynd viðleitni Rússa til að komast aftur á alþjóðlega íþróttasviðið eftir að hafa verið útilokaðir frá alþjóðlegum keppnum allt frá allsherjarinnrásinni í Úkraínu í febrúar 2022. Fyrr á árinu fengu þeir keppnisheimild hjá alþjóðlegum sérsamböndum eftir margra ára baráttu en til þessa hafa aðrir hafa komið í veg fyrir að þeir keppi.
Fyrir stríðið voru dæmi um að Rússar kepptu í íþróttum við nágrannaþjóðir í mesta bróðerni. Það átti meira að segja við um norræn ríki. Í íshokkíi var sérstök deild liða við Barentshaf skipuð eldri leikmönnum frá nyrsta hluta Rússlands, Finnlands og Noregs. Þetta voru leikmenn sem voru orðnir of gamlir til að keppa á atvinnumannamótum eða höfðu einfaldlega áhuga á íþróttinni og nutu þess vel að keppa á þessum vettvangi. Deildinni var haldið úti í tíu ár og hún var nyrsta áhugamannadeildin í íshokkíi. Aðstandendur hennar segja að einstakt samband hafi skapast milli liðanna og leikmanna þeirra.
Dagblaðið Guardian tók tvö dæmi um þetta í nýlegri umfjöllun. Annað þeirra er Kirkenes Puckers. Kirkenes er nyrst í Noregi skammt frá landamærunum við Rússland og bæir Rússlandsmegin eru öllu nær Kirkenes en næstu bæir í Noregi. Því er mikill söknuður að þessu samstarfi og liðið bíður í ofvæni eftir að það geti hafist aftur, þó á réttum forsendum.
Hitt dæmið er liðið RoKi í Rovaniemi höfuðstað Lapplands í Finnlandi. Mika Toivola, sem stýrir íshokkídeild RoKi, segir að mikil samvinna hafi verið milli hokkísambanda landanna. Lið mættust oft í æfingaleikjum og héldu saman æfingabúðir. Fjöldi leikmanna frá annarri þjóðinni hafi verið á mála hjá liðum hinnar.
Allt breyttist aðeins fjórum dögum eftir að Finnland og Rússland mættust í úrslitaleik í íshokkíi á Vetrarólympíuleikunum í Peking í Kína 24. febrúar 2022.
Rússar réðust inn í Úkraínu og fjöldi þjóða fordæmdi þá, þar á meðal Finnar. Þjóðirnar hafa ekki mæst í íshokkíleik síðan, Finnland er gengið í NATO og löng landamæri ríkjanna eru lokuð.
Nota íþróttir til að halda hugmyndafræði á lofti
Vitaly Kazakov, sem starfar við háskólann í Árósum í Danmörku, hefur kynnt sér vel hvernig Rússar nota íþróttir til að bæta ímynd sína. Hann er með doktorspróf í rússneskum fræðum, var í eitt ár í Háskóla Íslands þar sem hann skoðaði meðal annars áhrifin af velgengni íslenskra íþróttamanna en starfar nú í Árósum. Í doktorsritgerð sinni fjallaði Kazakov um hvernig rússnesk stjórnvöld nýttu Vetrarólympíuleikana í Sochi árið 2014 í pólitískum tilgangi. En síðan þá hefur hann víkkað út fræðasvið sitt og skoðað hvernig íþróttir og menning eru nýtt sem framlenging á stjórnmálum, til dæmis í tengslum við stórmót í íþróttum.
„Fólk hefur mikinn áhuga á íþróttum og setur líf sitt oft til hliðar til að fá athvarf frá hversdeginum, segir Kazakov. „HM í knattspyrnu í Katar 2022 náði til fimm milljarða manna og fátt getur náð til slíks fjölda. Rússneska stjórnin þekkir þetta vel. Ríki Sovétríkjanna áttu langa sögu um að nota íþróttir sem leið til að halda hugmyndafræði sinni á lofti."
Þetta hafi ríkisstjórnir Pútíns einnig gert frá því hann komst til valda í upphafi aldarinnar. „Rússar reyndu til dæmis að fá Sumarólympíuleikana 2012, sem tókst ekki, en þeir fengu Vetrarólympíuleikana til Sochi 2014 og heimsmeistarakeppnina í fótbolta 2018. Þetta skiptir þá miklu máli."
Kazakov segir að rannsóknir á heimsmeistaramótinu í Katar 2022 hafi sýnt að stjórnvöld þar vildu ekki aðeins nota það til að sýna styrk ríkisins á alþjóðavettvangi heldur sýna íbúum Miðausturlanda pólitískan og efnahagslegan styrk sinn.
„Í tilviki Rússa var megináherslan, ásamt alþjóðlegri athygli, á heimamenn. Miðað við mörg önnur lönd er meiri áhersla á mjúkt vald í öðrum löndum en stjórnmálin heima eru aðgreind frá því. Rússar vilja, með stórviðburðum eins og Vetrarólympíuleikunum og heimsmeistaramótinu í fótbolta, senda skilaboð til heimafólks. Það hjálpar til við að styrkja stöðu ríkisstjórnarinnar með því að sýna að Rússland sé stórveldi sem geti haldið svona stórviðburði. Það er því ekki bara verið að hrífa alþjóðasamfélagið heldur íbúa heimalandsins líka.“
Bann fyrir brot á ólympíuvopnahléi
Bann var sett á þátttöku rússneskra íþróttamanna með vísan í sérstakt heit um ólympíuvopnahlé sem Sameinuðu þjóðirnar tóku upp 1993. Það má rekja til þess tíma þegar hinir fornu Ólympíuleikar voru haldnir á tímum Forn-Grikkja. Það gengur út á að engin vopnuð átök fari fram frá því viku fyrir setningarhátíð Ólympíuleika þangað til viku eftir að þeim lýkur. Þetta vopnahlé er ekki bindandi og hefur margoft verið rofið.
Kringum Vetrarólympíuleikana og Vetrarólympíumót fatlaðra í Peking snemma á árinu 2022 átti þetta vopnahlé að standa frá 28. janúar til 20. mars. Rússar réðust inn í Úkraínu 24. febrúar. Alþjóðaólympíunefndin fordæmdi þetta rof á vopnahléinu strax sama dag. Framkvæmdastjóri nefndarinnar hvatti öll alþjóðleg sérsambönd daginn eftir til að hætta við eða færa öll alþjóðleg mót sem voru fyrirhuguð í Rússlandi eða Belarús. Jafnframt fyrirskipaði nefndin fánar frá þessum löndum yrðu ekki dregnir að hún í þessum keppnum og þjóðsöngvar þeirra myndu ekki hljóma.
Mörg sérsambönd brugðust fljótt við. Knattspyrnusamband Evrópu flutti til að mynda úrslitaleik meistaradeildar karla, sem átti að vera í St. Péturborg, til Parísar. Að auki var tennismóti í St. Pétursborg aflýst, Formúlu eitt kappakstri í Sochi og klifurmóti í Moskvu svo fátt eitt sé nefnt. Auk þess ákvað fjöldi sérsambanda að engar alþjóðlegar keppnir yrðu haldnar í þessum löndum. Alþjóðajúdósambandið fjarlægði Vladimír Pútín forseta Rússlands af lista heiðursfélaga.
Fjórum dögum eftir innrásina kom Alþjóðaólympíunefndin svo með þau tilmæli að íþróttamönnum frá Rússlandi og Belarús yrði ekki leyft að taka þátt í alþjóðlegum mótum. Við þessu var líka brugðist hratt. Alþjóðaknattspyrnusambandið rak Rússa úr heimsmeistaramótinu sem var í Katar síðar á árinu, Evrópska knattspyrnusambandið bannaði þjóðunum að taka þátt í alþjóðlegum keppnum á sínum vegum og Alþjóðaíshokkísambandið rak öll lið frá þessum tveimur löndum í öllum aldursflokkum úr keppni þangað til annað yrði tilkynnt. Stór hluti sérsambanda fór að dæmi þeirra.
Þetta hafði líka áhrif á samninga við styrktaraðila, enska liðið Manchester United sleit til dæmis styrktarsamningi við rússneska flugfélagið Aeroflot og Adidas sleit samningi sínum við rússneska knattspyrnusambandið.
Þegar Vitaly Kazakov er spurður hvernig þetta bann hafi skaðað Rússa vísar hann í það sem hann sagði áðan, að fólk horfi á íþróttir til að taka sér hlé frá hversdeginum. Það eigi líka við um pólitísk vandamál eins og hátt verðlag og stríð.
„Það að bestu leikmennirnir keppi á alþjóðavettvangi er mjög mikilvægt að þessu leyti, sérstaklega fyrir Rússland. Þetta hefur skaðað stjórnina en hún hefur reynt að búa eitthvað annað til í staðinn. Þeir reyndu til dæmis að búa til sérstakt mót fyrir BRICS-ríkin sem áttu að koma í staðinn fyrir Ólympíuleikana 2024.
Og þetta hafa þeir líka gert á öðrum vettvangi. Rússum var bönnuð þátttaka í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva en komu í staðinn á eigin keppni, Intervision, og endurvöktu þar með keppni frá tímum kalda stríðsins. Þetta undirstrikar að þessar keppnir eru afar mikilvægar fyrir þá."
Styðja rússneska íþróttamenn annars staðar
Kazakov bendir þó á að þrátt fyrir þetta hafi íþróttaáhugamenn fundið leiðir til að fylgjast með alþjóðlegum íþróttum, til dæmis með því að styðja Rússa sem leika með erlendum liðum. Athyglin hafi í auknum mæli beinst að einstökum íþróttamönnum, til dæmis Alexander Ovechkin. Hann leikur með Washington Capitals i bandarísku NHL-deildinni í íshokkíi og vakti miklar deilur fyrir stuðningsyfirlýsingar við rússnesk stjórnvöld í aðdraganda þingkosninganna þar í haust.
Annað dæmi er Matvey Safonov, markvörður Paris Saint Germain sem vann meistaradeild Evrópu í fótbolta karla í vor. Svo keppti 15 ára landslið Rússa á heimsmeistaramóti í fótbolta í fyrra og rússneskir fjölmiðlar hafi fjallað um það eins og þetta hafi verið venjulegt heimsmeistaramót fullorðinna.
Afstaðan til Rússa mildast
Rússar reyna nú stíft að koma sér aftur á íþróttakortið og hefur orðið eitthvað ágengt. Það var mikil samstaða um íþróttabannið til að byrja með en þegar stríðið fór að dragast á langinn tóku að heyrast efasemdir um að þetta hjálpaði við að ljúka stríðinu í Úkraínu. Svo var umræðan háværari um hvort með þessu væri verið að refsa fólki sem hefði ekkert með stríðsreksturinn að gera.
FIFA og UEFA ákváðu í október 2023 að létta banni af 17 ára landsliði Rússlands og Belarús í alþjóðlegum keppnum á þeim forsendum að það væri sárt að heil kynslóð væri svipt rétti til alþjóðlegrar keppni vegna þessara þrálátu átaka. Alexander Ceferín forseti UEFA sagði að afléttingin yrði ekki víðtækari en þetta. Samböndin hættu við þetta tveimur vikum seinna vegna andstöðu Úkraínu og fjölmargra annarra þjóða.
Alþjóðaólympíunefndin virðist hafa linast í afstöðu sinni á þessu ári. Í maí aflétti hún banninu á Belarús en viðhélt því á Rússlandi. Fjölmörg sérsambönd mótmæltu þessu og lýstu því yfir að þau myndu áfram banna íþróttamönnum þaðan þátttöku í alþjóðlegum mótum.
Rússar fá að taka þátt í Ólympíumóti fatlaðra
Í júlí aflétti nefndin banni á rússneska íþróttamenn eftir að hafa fengið fullvissu um að héruðin sem Rússar inlimuðu yrðu ekki hluti af umráðasvæði rússnesku nefndarinnar. Kirsty Coventry forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar segir að nefndin vilji tryggja að allir íþróttamenn hafi möguleika á að keppa á Ólympíuleikum og séu ekki gerðir ábyrgir fyrir gerðum stjórnvalda sinna. Hún tók þó fram að nefndin liði ekki ofbeldi eða stríð í heiminum og ennfremur væri það óbreytt að engir alþjóðlegir viðburðir yrðu haldnir í Rússlandi.
Rússar fengu í fyrra aðgang að Ólympíumóti fatlaðra þannig að íþróttamenn þaðan gátu tekið þátt í Vetrarólympíumóti á Ítalíu í byrjun þessa árs. Þeir tóku líka þátt í Vetrarólympíuleikunum en undir hlutlausum fána.
„Einfeldnislegt að segja að íþróttir og stjórnmál tengist ekki“
Kazakov segir að þegar öllu er á botninn hvolft líti stóru íþróttasamböndin svo á að hlutverk þeirra sé utanumhald um íþróttirnar sjálfar. Ákvörðun Alþjóðaólympíunefndarinnar er umdeild, en rökin eru þau að ekki eigi að blanda saman íþróttum og stjórnmálum.
„Ég held að ef stór sambönd eins og Alþjóðaknattspyrnusambandið og Alþjóðaólympíunefndin missa stóran hluta af áhorfendum á greinarnar skaði það opinbera hugmynd þeirra um að pólitík eigi ekki að hindra íþróttamenn í að keppa. En þessi fullyrðing er einfeldningsleg í ljósi þess að stjórnkerfi og fjölmiðlar sem eru undir stjórn ríkisins nýta sér velgengni í íþróttum til að senda pólitísk skilaboð. Flestir fallast á að það er ekki hægt að halda þessu aðskildu því alþjóðleg keppni er alltaf sett upp sem ein þjóð gegn annarri. Það er frægt orðatiltæki að íþróttir séu stríð án skotvopna en á sama tíma eiga þær stundum þátt í að stríð hefst á öðrum vettvangi.“
Andstaða margra þjóða
Þessi breytta afstaða til þátttöku Rússa í íþróttum hefur ekki lagst vel í allar þjóðir.
Ef við höldum okkur við íshokkíið þá felldi Alþjóðlegi íþróttadómstóllinn þann úrskurð í október að Alþjóðaíshokkísambandið yrði að leyfa Rússum að taka þátt í keppnum á vegum sambandsins fyrir heimsmeistaramótið sem verður í Þýskalandi í maí. Þetta þykir undirstrika þann mikla þrýsting sem Rússar geta beitt á þessum vettvangi. Rökin fyrir úrskurðinum voru að ekki væri sannað að þátttaka Rússa væri ógn við öryggi á mótum eins og sambandið hélt fram.
Finnska íshokkísambandið tilkynnti strax að liðið myndi ekki mæta í leiki sem settir væru á gegn Rússum. Fleiri þjóðir hafa farið að dæmi Finna; Svíþjóð, Noregur, Danmörk, Tékkland, Austurríki, Lettland og Kanada.
Andstaða landanna sést víðar. Samkvæmt fyrrgreindum úrskurði átti Rússlandi að vera meðal þátttökuþjóða á heimsmeistaramóti ungmenna í íshokkíi sem hefst í Kanada annan í jólum. Kanada neitaði liðinu um heimild til að koma inn í landið vegna stríðsins í Úkraínu. Alþjóðaíshokkísambandið lýsti því þá yfir að Rússar gætu ekki tekið þátt í mótinu. Of seint væri að finna annan keppnisstað og því væri þetta staðan.
Rússneska íshokkísambandið mótmælti þessu, sagði ákvörðunina ólögmæta og eingöngu byggða á pólitískum forsendum. Hún væri brot á ólympíuandanum, mismunun og bryti á jafnrétti og trausti á alþjóðlegum keppnum. Sambandið hefur leitað til Alþjóðaólympíunefndarinnar.
Í byrjun þessarar viku tilkynnti Evrópusambandið að rússneskir íþróttamenn fengju ekki að keppa undir eigin fána á íþróttaviðburðum í Evrópu og Rússum yrði bannað að taka sæti í stjórnum sérsambanda.
Langt í að Rússar verði teknir inn í íþróttasamfélagið
Kazakov telur að það verði enn bið á að Rússum verði leyfði almenn þátttaka í alþjóðlegum íþróttamótum. „Ég tel það ekki raunhæft fyrr en stríðinu í Úkraínu lýkur á einhvern hátt. Það fer eftir pólitískri andstöðu á Vesturlöndum, bæði í íþróttunum og stjórnmálunum. Flest mótin eru í löndum sem eru hörð á móti stríðsrekstri Rússa þannig að þetta verður mjög erfitt í framkvæmd.“
Kazakov telur reyndar að þátttaka Rússa í íþróttum verði takmörkuð þó að stríðinu í Úkraínu ljúki fljótlega. „Þó að stríðinu lyki á morgun myndi það taka langan tíma fyrir Rússa að endurreisa orðspor sitt. Þó að íþróttir séu öflugt tæki til þess þá hefur orðsporið orðið fyrir mjög miklu tjóni sem gæti í besta falli tekið mörg ár að bæta. Og þátttaka í alþjóðlegum íþróttum dugar ekki til að Rússar verði stór hluti af alþjóðasamfélaginu aftur.“