Heimastjórn Djúpavogs segir að viðhald og þjónusta á Axarvegi sé í algjörum ólestri. Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings, telur fjármagn til viðhalds vega á Austurlandi of naumt skammtað.
„Það er ekki við starfsmenn Vegagerðarinnar hérna að sakast en þeir hafa bara ekki það fjármagn sem þarf til að sinna vel viðhaldi vega hér, það er alveg ljóst.“
Austfirðingar hafa lýst vonbrigðum með fáar áætlaðar nýframkvæmdir í landshlutanum í nýrri samgönguáætlun.
„Þá skyldi maður ætla, ef á ekki að fara af stað með nýframkvæmdir, að það væri þá sett meira fjármagn í einmitt viðhald til að halda við þessum gömlu vegum þangað til eitthvað nýtt tekur við. Þarna getum við horft til bæði Axarvegar, við getum horft til sveitavega, við getum horft til Fjarðarheiðarinnar til dæmis,“ segir Dagmar.
Heimastjórn Djúpavogs segir í bókun frá fundi í síðustu viku að viðhald og þjónusta við Axarveg sé í ólestri. Vegurinn sé óheflaður og í hann skorti ofaníburð. Vegurinn um Öxi liggur frá Berufirði í Skriðdal, á milli Djúpavogs og Egilsstaða. Dagmar Ýr tekur undir bókunina.
„Vegurinn er sums staðar ofboðslega grófur og annars staðar rosalega holóttur. Það er auðvitað mikil synd að vegurinn sé hafður í þessu ástandi því þá verður hann ekki til þess að flýta eins mikið fyrir för fólks og annars væri.“
Dagmar segir mikilvægt að ástand vegarins verði bætt enda sé umferð um hann mikil á sumrin. „Við erum að velta því fyrir okkur hvort það eigi virkilega að bjóða okkur öllum, bæði okkur heimamönnum og svo öllum þessum fjölda ferðamanna sem er að nota veginn í sumar, upp á að keyra hann í þessu ástandi það sem eftir lifir sumars. Nú er líka góða veðrið náttúrlega mætt hingað austur þannig að það er alveg fyrirséð að umferð um veginn er bara að fara að aukast. Sérstaklega mun örugglega aukast umferð með aftanívagna sem getur verið ansi skrautlegt á þessum vegi ef verður ekki brugðist við.“