Tónlistarkonan Taylor Swift og fótboltakappinn Travis Kelce gengu í hjónaband á föstudagskvöld. Allt sem tengdist brúðkaupinu var mikið leyndarmál en þar sem brúðkaupið var haldið á Madison Square Garden-leikvellinum fór ekki fram hjá neinum hvað væri um að vera.
Flestum brúðkaupsgestum var ekið inn um stórt tjald fyrir utan leikvanginn svo þau væru falin augum forvitinna aðdáenda sem reyndu að fylgjast með. Nokkrir voru þó svo hugrakkir að þeir gengu inn.
Grínleikarinn Adam Sandler gaf hjónin saman og voru þau bæði með bræður sína sér við hlið, Austin Swift við hlið Taylor og Jason Kelce við hlið Travis. Foreldrar þeirra beggja sóttu brúðkaupið en að sjálfsögðu var gestalistinn einnig stjörnum prýddur.
New York Times greinir frá því að leikkonurnar Emma Stone og Dakota Johnson hafi verið á gestalistanum auk söngkonunnar Stevie Nicks. Þá voru söngvararnir Suki Waterhouse, Benson Boon, Ed Sheeran og Sombr auk leikaranna Brad Pitt og Tom Brady.
Tónlistarkonan Selena Gomez og Swift hafa verið vinkonur um árabil enda skutust þær upp á sjónarsviðið á svipuðum tíma. Swift var sjálf gestur í brúðkaupi Gomez þegar hún gekk að eiga Benny Blanco. Þau voru meðal gesta sem fengu einnig boð í fyrirpartý brúðkaupsins á fimmtudag.
Gigi Hadid, fyrirsæta og kærasta Cooper, er góð vinkona Taylor Swift. Hún klæddist fallegum bleikum kjól og segir hárgreiðslumeistari hennar hafa viljað búa til sömu tilfinningu og þegar maður borðar ís í formi.
Söngkonan Gracie Abrams er ein vinkvenna Swift og hafa þær meðal annars unnið saman að tónlistarsmíð.
Tate McRae söngkona klæddist Valentino-kjól frá árinu 2022.
Fergie fagnaði því að geta bæði klæðst Christian Dior-kjól og fagnað ástinni.
Leikkonan Joey King var mætt með eiginmanni sínum Steven Piet en vísaði hún í skiltið sem hjónin birtu fyrir utan Madison Square Garden meðan á brúðkaupinu stóð.