GKR kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2015 með slagarann „Morgunmat“ og gaf ári síðar út plötuna GKR í formi morgunkornspakka í Kjötborg. Hann flutti árið 2021 til Björgvinjar í Noregi eftir að hafa upplifað mikið tilgangsleysi á Íslandi.
Þú ert að halda stóra tónleika, hvað kemur til?
„Ég gaf út plötuna GKR árið 2016 og er að fagna henni. Gaf hana út á USB í svona morgunkornspakka og seldi í Kjötborg. Núna er einmitt búið að loka Kjötborg þannig það er smá nostalgía þar. Svo er ég fluttur aftur til Íslands þannig þetta eru líka heimkomutónleikar,“ segir Gaukur.
Þú ert búinn að búa erlendis í fimm ár og ekki verið mjög sýnilegur. Heldurðu að fólk sé ekkert búið að gleyma þér?
„Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér og læt annað frekar koma mér á óvart. En ég finn samt líka út frá miðasölu og peppi að það er alveg mikil stemming. En ég fer mjög auðmjúkur inn í þetta,“ segir hann.
Kominn aftur eftir „herbúðir“ í útlöndum
Afmælistónleikarnir verða í Iðnó næstkomandi laugardag. Tónlistarmennirnir tatjana og ungurorri munu hita upp fyrir raparann og fleiri góðir gestir svo líta við. Gaukur lofar trylltri skemmtun og segist vera í góðri æfingu.
Hverju eiga gestir von á?
„Á tímum sem þessum þar sem gervigreindin og internetið ræður ríkjum þá eru stundir sem þessar, þar sem fólk kemur saman á tónleikum, svo dýrmætar. Mun dýrmætari finnst mér en nokkru sinni áður, viðburðir þar sem maður getur gleymt stað og stund og notið augnabliksins,“ segir Gaukur.
„Ég er að fara að taka lög sem ég hef ekki tekið í mörg ár. En þetta er líka áminning um það hvað það getur verið ógeðslega gaman á tónleikum,“ bætir hann við.
„Ég er búinn að vera spila núna í fimm ár fyrir fólk sem skilur ekki orð af því sem ég segi þannig ég er kominn í góða æfingu við að koma fram. Mér líður eins og ég hafi verið sendur í herbúðir til útlanda og er kominn aftur sterkari fyrir vikið.“
„Ég var orðinn alltof blankur“
Hvað kemur til að þú ert fluttur aftur til Íslands?
„Ég var orðinn alltof blankur. En það eru í raun tveir faktorar. Ég var búinn að vera að harka í tónlistarsenunni í Noregi sem gekk vel en ég náði ekki nógu góðri fótfestu í bókunum til að lifa á því. Síðan var ég alltaf að vinna í einhverjum aukavinnum til hliðar og undir lokin var ég orðinn hættulega spenntur fyrir þeim,“ segir Gaukur.
„Hérna heima er ég með æðislega vinnu með vini mínum sem er með einhverfu. Ég er stuðningur fyrir hann en hann er í raun stuðningur fyrir mig. Það er æðislegt starf og mér þykir mjög vænt um hann sem er stór hluti af ástæðunni fyrir heimkomunni.“
„Mig langaði að prófa hvernig er að vera aftur á Klakanum. Mér finnst tónlistarsenan á Íslandi líka vera orðinn spennandi á ný. Þegar ég fór út leið mér eins og það væri lítið spennandi í gangi en núna er öldin önnur,“ bætir hann við.
Hvað hefur breyst á síðustu tíu árum?
„Það hefur svo ótrúlega mikið breyst að ég veit ekki einu sinni hvar maður á að byrja. Ég hef breyst, tónlistin hefur breyst og líka allt í kringum mann,“ segir Gaukur.
„Það er eiginlega betra að nefna það sem hefur ekki breyst. Ég er enn að vinna með Marteini Bngrboy og Ými sem hannaði Morgunkornspakkann og fleira fyrir mig. Marteinn er í dag þekktastur fyrir að hafa pródúserað fyrir Birni en við Marteinn stigum okkar fyrstu skref saman og hann verður plötusnúður á tónleikunum,“ segir han.
„Það er of mikið sem hefur breyst til að ég geti sett fingur á það. En þannig á það líka að vera.“
Hægt er að kaupa miða á tónleikana á Tix en fyrir utan þá er Gaukur með ýmislegt á prjónunum, frekari tónlistarútgáfu og „algjöra snilld“ sem hann vill ekki tjá sig strax um eða lofa upp í ermina með.