Kolbeinn Hólmar Stefánsson, félagsfræðingur og dósent við Háskóla Íslands, segir skýrslu um viðhorf íslenskra karla til karlmennsku og ofbeldis ekki halda vatni. Hann gagnrýnir jafnframt fjölmiðla fyrir að hafa leitað til tveggja doktorsnema sem hafi ekki haft nægilega góðan skilning á gögnunum og túlkað niðurstöðurnar án þess að átta sig á því hversu fjarstæðukenndar þær væru.
Skýrslan hefur vakið athygli fyrir niðurstöður á borð við að 65 prósent íslenskra karlkyns svarenda tengi karlmennsku við að leysa ágreining með ofbeldi. Kolbeinn segir hins vegar að gögnin standi ekki undir þeim ályktunum sem dregnar hafi verið um íslenska karla.
Alþjóðlega hugveitan Equimundo vann skýrsluna að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar og hún var kynnt í september. Hún byggir á netkönnun fyrirtækisins RepData, sem fór fram frá febrúar til apríl meðal karla og kvenna á aldrinum 18 til 45 ára í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Alls svöruðu 4.547 einstaklingar.
Segir fjölmiðla hafa leitað til viðmælenda sem skildu ekki gögnin nægilega vel
Í Facebook færslu segir Kolbeinn fjölmiðla eiga að leita til fólks sem kunni að meta töluleg rannsóknargögn áður en niðurstöður þeirra séu túlkaðar fyrir almenningi.
„Ágætis þumalputtaregla fyrir fjölmiðla: Ef dæmið snýst um megindleg gögn, talið þá við einhvern eins og Evu Heiðu sem skilur megindlegar aðferðir.“
Hann vísar þar til Evu H. Önnudóttur, prófessors í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, sem setti fyrirvara við niðurstöðurnar í viðtali við RÚV á mánudagskvöld.
Vísir hafði áður rætt við Þórð Kristinsson, doktorsnema í menntavísindum, og Arnar Gíslason, doktorsnema í kynjafræði við Háskóla Íslands. Þórður lýsti niðurstöðunum sem sláandi, en nefndi jafnframt mögulega skekkju í gögnunum og ólíkan skilning svarenda á spurningunum. Arnar taldi niðurstöðurnar vera viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag og kallaði eftir viðbrögðum stjórnvalda og fleiri aðila.
Kolbeinn fer hörðum orðum um það hvernig niðurstöðurnar komust í umræðuna:
„Þessi skýrsla hefði aldrei átt að fá athygli en það gerðist af því blaðamaður leitaði til tveggja doktorsnema sem hafa bersýnilega ekki nægilega góðan skilning á þessháttar gögnum og túlkuðu niðurstöðurnar óspart án þess að gera sér grein fyrir því hvað þær voru fjarstæðukenndar.“
Hann segir ekki við nemana sjálfa að sakast, enda hafi þeir tæpast gert sér grein fyrir takmörkum þekkingar sinnar. Það sé hins vegar áhyggjuefni að doktorsnemar í félags- og menntavísindum þurfi ekki að hafa sterkari aðferðafræðilegan grunn.
Sjálfvalið úrtak gefi ekki endilega rétta mynd af íslenskum körlum
Í pistli sínum, „Úr karlakassanum“, rekur Kolbeinn það sem hann telur vera grundvallarannmarka á rannsókninni. Gagnrýnin snýr meðal annars að því hvernig svarendur voru valdir, smæð og samsetningu íslenska hópsins og túlkun svaranna.
Hann segir þátttakendur hafa komið úr nethópum kannanafyrirtækja og að safnað hafi verið svörum þar til fyrirfram ákveðnum fjölda í tilteknum hópum væri náð. Slíkir kvótar tryggi ekki að svarendur séu dæmigerðir fyrir aðra á sama aldri eða af sama kyni.
Ef það sem geri fólk líklegra til að taka þátt tengist viðhorfunum sem verið sé að mæla geti niðurstöðurnar skekkst. Fleiri svör leysi ekki þann vanda.
„Fleiri svör gefa okkur einungis nákvæmara mat á röngu gildi.“
Kolbeinn bendir á að markmiðið hafi verið að fá þúsund svarendur í hverju landi, en íslenski hópurinn hafi aðeins talið 547 manns. Þar af hafi konur verið 18 prósent, eða um 98. Hann segir hvergi koma fram í skýrslunni að gögnin hafi verið vegin til að leiðrétta fyrir skekkjum.
„Það eru einfaldlega of miklar líkur á því að gögnin séu svo skekkt að þau séu ónýtileg.“
Ekki spurt hvort ofbeldi væri besta leiðin
Kolbeinn gagnrýnir einnig hvernig niðurstöðurnar um ofbeldi hafi verið túlkaðar. Það að tengja beitingu ofbeldis við karlmennsku sé ekki það sama og að telja ofbeldi bestu, einu eða æskilegustu leiðina til að leysa ágreining.
Hann bendir á að svarendur hafi einnig getað tengt karlmennsku við að leysa ágreining með samskiptum. Gögnin geri ekki kleift að segja hvor leiðin yrði fyrir valinu hjá þeim sem tengdu hvort tveggja við karlmennsku.
Þá segir hann íslenskar konur einnig skera sig úr í sömu átt og íslenskir karlar. Samkvæmt þeim niðurstöðum sem hann rýnir í tengi næstum helmingur íslenskra kvenna ofbeldisbeitingu við karlmennsku og rúmlega helmingur telji karla fremur en konur eiga að sjá fyrir fjölskyldunni.
Kolbeinn bendir líka á niðurstöður um að um 65 prósent íslenskra karla vilji að löggjöf byggist á trúarlegum gildum og um 67 prósent telji landið betur statt með sterkan leiðtoga sem skeyti ekki um þing og kosningar. Hann telur þær tölur enn frekar gefa tilefni til að draga gæði gagnanna í efa.
Eva Heiða bendir á skekkju í menntun svarenda
Eva H. Önnudóttir sagði í viðtali við RÚV að ónægar upplýsingar lægju fyrir um val þátttakenda og að úrtakið virtist ekki endurspegla fólk á aldrinum 18 til 45 ára á Íslandi.
Hún nefndi að tæplega 60 prósent svarenda væru með háskólamenntun, á meðan sambærilegt hlutfall í þessum aldurshópi á Íslandi væri um 30 prósent. Einnig vantaði upplýsingar um hvaða nethópar hefðu verið notaðir við gagnaöflunina.
Eva sagði að aðrar rannsóknir gæfu vissulega til kynna breytingar á viðhorfum til jafnréttismála sem mætti kalla bakslag, en breytingin væri ekki jafn ýkt og niðurstöður Equimundo skýrslunnar gæfu til kynna.
Segir hugmyndafræði hafa skekkt túlkunina
Kolbeinn ber niðurstöðurnar einnig saman við alþjóðlegu ISSP rannsóknina, þar sem íslenskum gögnum um kynhlutverk var safnað árið 2024. Þar hafi 4,9 prósent íslenskra svarenda verið sammála því að hlutverk karla væri að afla tekna og kvenna að sinna heimilinu.
Hann tekur fram að spurningarnar séu ekki þær sömu og hjá Equimundo. Munurinn sé engu að síður mikill.
Þá gagnrýnir hann mælitækið sem kallað er „karlakassinn“. Þar sé að hans mati blandað saman gildismati, hugmyndum um heiminn og lýsingum á persónulegum aðstæðum. Sá sem upplifi að enginn standi með honum geti til dæmis verið að lýsa raunverulegri stöðu sinni án þess að það segi nokkuð um hugmyndir hans um hvernig karlar eigi að vera.
Kolbeinn telur hugmyndafræðilegt sjónarhorn hugveitunnar hafa skekkt túlkunina og segir raunverulega viðvörunarmerkið snúa að fjölmiðlum og gagnrýninni hugsun.
„Það sem skýrslan afhjúpar er hvað það er auðvelt að fanga athygli fjölmiðla með rusli, að minnsta kosti ef það virðist staðfesta rétta pólitíska orðræðu.“
Afleiðingin sé að fyrirsagnir og illa unnin umfjöllun móti hugmyndir almennings, á meðan gagnrýnin nái til mun færri.
„Það sem lifir í hugum fólks er hugmynd sem það fékk úr fyrirsögnum og illa unninni umfjöllun og bilið á milli raunveruleikans og hugmynda fólks breikkar sem því nemur, eina illa unna frétt í einu.“