Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Þar segir að brotaþoli hafi verið með minniháttar meiðsli eftir árásina. Hins vegar var einn maður í annarlegu ástandi handtekinn og vistaður í fangageymslu.
Einnig var tilkynnt um líkamsárás í Kópavogi þar sem brotaþoli var sömuleiðis með minniháttar meiðsli. Sá sem var handtekinn var einnig í annarlegu ástandi.
Í Hafnarfirði barst lögreglunni tilkynning um umferðarslys þar sem bíl var ekið undir brú. Bíllinn reyndist hins vegar of hár og rakst undir brúna. Engin meiðsli voru á fólki og var málið afgreitt á vettvangi.
Lögreglan hafði þá töluverð afskipti af ökumönnum sem keyrðu of hratt, voru ölvaðir eða undir áhrifum fíkniefna eða töluðu í farsíma án handfrjáls búnaðar.