Bandaríski stórleikarinn Michael Douglas hefur vísað á bug orðrómi sem hefur fylgt honum í áratugi, þess efnis að hann hafi glímt við kynlífsfíkn.Douglas, sem er 82 ára, ræðir málið bæði í nýrri ævisögu sinni, One Helluva Ride, og í viðtali við The Sunday Times.Þar var hann spurður hvort hann hefði einhvern tímann velt því fyrir sér hvers vegna hann hefði sofið hjá svo mörgum konum.„Ég veit ekki hvort ég svaf hjá svona mörgum konum. Ég lít ekki þannig á það,“ svaraði Douglas. „Ég var heilbrigð afurð sjöunda áratugarins.“
Michael Douglas rýfur þögnina um þrálátan orðróm