Lögregla í Noregi telur nú að ágreiningur hafi legið að baki skotárásinni í Halden í morgun, þar sem feðgar voru skotnir til bana og þriðji maðurinn særðist alvarlega. Lögregla segir upplýsingar úr yfirheyrslum styðja þá tilgátu.
Karlmaður á þrítugsaldri, sem er grunaður um verknaðinn, hafði áður verið hluti af sama veiðihópi og mennirnir sem skotið var á. Hann var þó ekki hluti af hópnum þegar skotárásin varð.
Játaði að hafa orðið feðgunum að bana en játaði ekki tilraun til manndráps
Samkvæmt frétt VG hefur maðurinn játað að hafa orðið feðgunum að bana í skriflegri yfirlýsingu. Ole Richard Holm-Olsen, lögmaður hins grunaða, segir hann hafa játað að hafa valdið skaða, en að hann játi ekki tilraunir til manndráps.
Faðir hins grunaða ræddi við VG og sagði árásina hafa komið sér algjörlega í opna skjöldu. Hann var sjálfur að borða morgunmat þegar hann heyrði skothvellina og áttaði sig síðar á því að sonur hans hafði hleypt af rifflinum.
Faðirinn þekkti mennina sem létust vel en sagðist ekki vita hvað gæti hafa legið að baki árásinni. Hann segir son sinn ekki hafa verið í nánu sambandi við neinn þeirra.
Hefur stundað skotíþróttir frá unga aldri
Maðurinn notaði veiðiriffil við árásina. Samkvæmt frétt NRK hefur hann stundað skotíþróttir frá unga aldri og er sagður hafa verið félagi í sjálfboðaliðasveit riffilskyttna í Noregi en sé það ekki lengur.
Eftir skotárásina lagði hann vopnið frá sér og aðrir á vettvangi náðu stjórn á honum og vopninu á meðan beðið var eftir lögreglu.
Lögregla rannsakar málið sem tvö manndráp og tilraun til manndráps. Allir fjórtán mennirnir sem voru í veiðihópnum hafa fengið stöðu brotaþola.
Feðgarnir sem létust voru á áttræðis- og fimmtugsaldri. Annar maður á fimmtugsaldri særðist alvarlega og var fluttur með þyrlu á sjúkrahús.
Hinn grunaði verður látinn gangast undir bráðabirgðamat vegna mögulegrar réttargeðrannsóknar.