Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti sagði í færslu á samfélagsmiðlum í dag að Bandaríkin væru tilbúin að hafa milligöngu um að hefja aftur viðræður milli Úkraínu og Rússlands um að binda enda á stríðið milli ríkjanna sem hefur staðið frá allsherjarinnrás Rússa í febrúar 2022.
Fulltrúar ríkjanna hittust í þrígang í janúar og febrúar, fyrst í Sameinuðu arabísku furstaveldunum og svo í Sviss, en ekkert kom út úr þeim viðræðum.
Stærsti ásteitingarsteinninn var spurningin um eftirgjöf á kröfum um landsvæði.
Zelensky sagði Bandaríkin vinna að því að koma á þríhliða viðræðum seinna í þessum mánuði.
„Í gær staðfesti ég við Bandaríkjamenn að við væru tilbúin að styðja slíkan fund fyrir lok október. Það eru engar nýjar upplýsingar. Við erum opin fyrir Sameinuðu Arabísku furstadæmunum eða hverju því landi sem Bandaríkin stinga uppá.“
Zelensky segist viss um að Bandaríkin muni bjóða Rússum til viðræðna ef þeir hafa ekki þegar gert það.
„Við bíðum svars. Við tökum jákvætt í samningaviðræður.“
Engu að síður er mikil spenna í átökunum milli Rússlands og Úkraínu þessa dagana. Varnarmálaráðuneyti Rússlands hét því í dag að hert yrði á árásum á Úkraínu eftir að Zelensky boðaði frekari árásir á olíuhreinsistöðvar í Rússlandi.
Rússar gerðu meðal annars loftárásir á Kænugarð í morgun, rétt eftir að Friedrich Merz Þýskalandskanslari kom til borgarinnar. Hann var þar til að funda með Zelensky um nýjan stuðningspakka fyrir Úkraínu og ítreka stuðning Þýskalands.