Gul viðvörun vegna skriðuhættu á norðanverðum Vestfjörðum hefur verið framlengd til klukkan átta í fyrramálið þegar staðan verður endurmetin. Martina Stefani, sérfræðingur við ofanflóðahættumat hjá Veðurstofu Íslands, sagði í samtali við fréttastofu að enn væri mikil bleyta í jarðvegi á svæðinu.
Síðustu daga hafa nokkrar skriður fallið á Vestfjörðum. Í dag hafa Veðurstofu borist tvær tilkynningar. Aurskriða fór yfir Steinadalsveg við sunnanverðan Gilsfjörð. Hægt er að keyra fram hjá en Vegagerðin vinnur að hreinsun. Þá féll stórt grjót á veginn á Kjörvogshlíð milli Djúpavíkur og Gjögurs á Ströndum.
Martina varar við því að það geti komið til vegalokana vegna skriðuhættu og hvetur íbúa og vegfarendur til að fylgjast með stöðu mála á vef Veðurstofunnar.