„Ég bara segi: Það skal enginn snerta verkfallsvopn verkalýðshreyfingarinnar,“ segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB, í þættinum Átakalínur. Í þættinum er farið yfir íslenska vinnumarkaðsmódelið en það er aftur til umræðu, nú síðast vegna verkfalls flugvirkja Icelandair, komu þá upp raddir um að þörf sé nýju vinnumarkaðsmódeli sem feli meðal annars í sér að litlir hópar geti ekki stöðvað heilu atvinnugreinarnar.
„Það skal enginn snerta verkfallsvopn verkalýðshreyfingarinnar“