Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

Litlu mátti muna að alvarlegur árekstur yrði á gatnamótum Bæjarháls og Höfðabakka í Árbæ þegar tveir ökumenn óku yfir á rauðu ljósi. Atvikið náðist á myndband og hefur vakið talsverða athygli á samfélagsmiðlum.
Myndbandið var birt í Facebook-hópnum Fávitar í umferðinni. Þar sést þegar tveimur bifreiðum er ekið beint yfir gatnamótin þrátt fyrir að rautt ljós logi. Á sama tíma eru ökumenn úr gagnstæðri átt að hefja vinstri beygju yfir akstursleið bifreiðanna.
Ökumennirnir sem voru að beygja virðast átta sig tímanlega á hættunni og stöðva bifreiðar sínar. Þannig tókst að koma í veg fyrir árekstur og varð engum meint af.
Daniels Fomicevs birti myndbandið í hópnum og skrifaði einfaldlega: „Tveir snillingar.“
Atvikið hefur kallað fram hörð viðbrögð meðal meðlima hópsins. Andrés Guðmundsson sagði að myndavélaeftirlit á gatnamótunum gæti skilað umtalsverðum sektargreiðslum og bætti við að ökumennirnir ættu fremur að halda sig við almenningssamgöngur.
Gunnlaugur Berg Sturluson gagnrýndi hins vegar gatnamótin sjálf og sagði þau hafa orðið „handónýt“ eftir breytingar sem þar voru gerðar.
Fleiri tóku undir að ástandið á gatnamótunum væri varasamt. Eygló Karlsdóttir sagði sambærileg atvik vera algeng.
„Þetta er alltaf að gerast og er slysahætta,“ skrifaði hún.
Sara Dögg Guðnadóttir tók í sama streng og sagði vandann hafa verið viðvarandi eftir breytingar á umferðarljósunum.
„Þetta gerist ítrekað eftir breytingu ljósanna,“ skrifaði hún.