Frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra til breytinga á húsaleigulögum felur í sér að svokallaðri leigubremsu verði komið á. Formaður Samtaka leigjenda á Íslandi fagnar frumvarpinu og segir samráð með ráðuneytinu hafa verið með ágætum.
Frumvarpinu var útbýtt utan þingfundar í gær. Það kveður meðal annars á um að tilgreina skuli breytingar á leiguverði í leigusamningi. Fjárhæð húsaleigu mætti því ekki breyta að öðru leyti nema rekstrarkostnaður hafi hækkað verulega. Slíkar hækkanir yrði að kynna með þriggja mánaða fyrirvara.
Styrkja stöðu leigjenda
Í greinargerð frumvarpsins segir að því sé ætlað að auka húsnæðisöryggi, minnka vægi verðtryggingar og styrkja stöðu leigjenda með auknum fyrirsjáanleika og skýrara regluverki.
Þá sé frumvarpið liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að greiða fyrir því að kjarasamningar haldi eftir að verðbólga mældist yfir forsenduákvæði þeirra.
„Við gerð leigusamnings er aðilum heimilt að semja um að fjárhæð húsaleigu taki reglubundnum breytingum á leigutíma með tilteknu millibili. Tilgreint skal í leigusamningi hvort og þá með hvaða hætti og millibili fjárhæðin taki breytingum,“ segir í frumvarpinu.
Fjárhæð húsaleigu verði ekki breytt síðar á leigutímanum að öðru leyti en heimilt er.
„Semji aðilar leigusamnings um reglubundna breytingu á fjárhæð húsaleigu á leigutíma samkvæmt þessari grein skal það gert í upphafi við gerð leigusamnings og skal fjárhæðin taka breytingum samkvæmt einu af eftirfarandi viðmiðum:
a. til samræmis við breytingu á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar samkvæmt upplýsingum Hagstofu Íslands sem gildir í þeim mánuði sem breyting leigufjárhæðar tekur gildi samanborið við gildi vísitölunnar sem gilti fyrir þann mánuð sem leigufjárhæð var síðast ákvörðuð,
b. samkvæmt föstu hlutfalli af leigufjárhæð sem samið er um fyrir fram eða
c. samkvæmt fastri fjárhæð sem samið er um fyrir fram.“
„Leigjendur verða að geta staðið á rétti sínum og búið við öryggi. Með þessum aðgerðum erum við að styrkja réttarstöðu þeirra, tryggja að þeir standi ekki einir þegar á reynir, bæta aðgengi að ráðgjöf og gera leigumarkaðinn sanngjarnari og fyrirsjáanlegri,“ var haft eftir Ragnari Þór Ingólfssyni, félags- og húsnæðismálaráðherra, á vef Stjórnarráðs Íslands þegar aðgerðir ráðuneytisins til að styrkja stöðu leigjenda voru kynntar fyrr á árinu.
Viðsnúningur eftir að ekkert var hlustað
Yngvi Ómar Sigrúnarson, formaður Samtaka leigjenda á Íslandi (áður Leigjendasamtökin), segir samstarf með félags- og húsnæðismálaráðuneytinu hafa verið talsvert betra en áður.
„Við höfum átt í samskiptum við ráðherra hér áður og nefndir innan Alþingis og það hefur verið bara mjög slæmt. Það hefur verið litið á leigjendur sem svona afgangsstærð á íslenskum fasteignamarkaði lengi og í dag er þetta hins vegar 30% þjóðarinnar,“ segir hann í viðtali við fréttastofu.
„Að vera komin með mann eins og Ragnar sem þekkir leigumarkaðinn og fasteignamarkaðinn vel og hefur hug til að vinna góð verk, það er bara allt annað líf.“
Hann segir frumvarpið skref í því að færa húsaleigulög nær því sem þekkist í löndum Norðvestur-Evrópu.
„Það er ekki verið að leyfa hækkanir út af vísitölu og út frá einhverjum markaðsforsendum á sama tíma. Það bara tíðkast ekki annars staðar. Núna verður vísitala meira ráðandi og bara á ársgrundvelli.“
Mánaðarlegar vísitöluhækkanir kyndi undir verðbólgu í stað þess að fylgja henni, líkt og árlegar vísitöluhækkanir geri.
„Þær horfa á verðbólgu sem hefur átt sér stað og bregðast við henni á meðan þessar mánaðarlegu hækkanir voru bara að skapa verðbólgu. Við sýndum fram á það með útreikningi að 15-20% af ársverðbólgu væru bara tilkomin út af þessu.“