„Árið 1968 var stór skjálfti á svæðinu, um sex að stærð, og svo aftur árið 1929, svipaðri stærð, sem fannst vel. Þannig að við erum svona að bíða eftir því en hvort það gerist verður bara að koma í ljós,“ segir Sigríður Magnea Óskarsdóttir náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands í samtali við fréttastofu.
Spenna safnast upp
Skjálftinn sem fannst víða um höfuðborgarsvæðið um klukkan tuttugu mínútur í eitt eftir miðnætti mældist um 3,4 að stærð en hún segir ekki óvenjulegt að fólk hafi fundið frekar vel fyrir honum.
„Þetta er náttúrulega nær höfuðborgarsvæðinu heldur en virknin við Grindavík þannig að það er ekkert óeðlilegt að við finnum frekar fyrir honum heldur en virkninni þar,“ segir Sigríður. Brennisteinsfjöllin séu merkilegt jarðskjálftasvæði og það sé svolítið síðan virkni hafi mælst þar síðast. Spenna hafi safnast upp á svæðinu.
„Við fengum skjálfta af svipaðri stærð í ágúst í fyrra. Sá var um 3,8 og það hafa alveg orðið hrinur þarna reglulega á síðustu sex árum,“ segir hún en bætir við: „En svona í samhengi við atburðina á Reykjanesi þá er alveg innistæða fyrir stórum skjálfta en hann hefur látið bíða eftir sér og gæti alveg látið bíða eftir sér lengi enn.“
Röð skjálfta ekki áhyggjuefni
Hún segir verulega erfitt að segja til um hvenær stórir skjálfar séu væntanlegir.
Eruð þið þá að reikna með að það kæmi stór skjálfti og að því myndi fylgja eldgos?
„Nei, ekkert endilega, þetta eru sem sagt svona taktískar hreyfingar í tengslum við flekaskilin,“ útskýrir hún.
Þrátt fyrir að margir skjálftar hafi riðið yfir suðvesturhorn landsins síðasta sólarhringinn eru ekki endilega neinar ástæður fyrir því að svo stutt sé á milli þeirra.
Er þetta algjör tilviljun að það séu nokkrir skjálftar núna á þessum sólarhring?
„Já, stundum eru margir skjálftar á landinu og stundum lítið. Það er bara tilviljanakennt,“ segir hún og bætir við að það sé ekkert sem bendi til þess að eldgos sé væntanlegt.
„Það er allavega ekkert af okkar mælitækjum sem sýnir neinn gosóróa neins staðar. Ekki eins og staðan er núna.“
Aðspurð hvernig sú sviðsmynd sem þykir enn líklegust samkvæmt ykkar nýja hættumati fyrir Grindavík horfi við henni staðfestir hún að eldgos sé enn talið líklegast.
„Já, við gerum ráð fyrir því að ef til eldgoss kæmi þá yrði það með svipuðum hætti og verið hefur í fyrri atburðum,“ segir Sigríður en ítrekar að það sé ekkert hægt að segja til um hvenær það yrði.