Ásum, móðurfélagi Símans, hefur borist tilkynning frá Samkeppniseftirlitinu um að hefja megi viðræður um mögulega sátt vegna kaupa félagsins á Öryggismiðstöð Íslands og Opnum kerfum.
Þetta kemur fram í tilkynningu Ása í kvöld og er sagt vera að beiðni félagsins sjálfs. Þannig semja fyrirtæki og eftirlitið um málalyktir til að bæta úr mögulegum samkeppnisvandamálum, fremur en að fara dómstólaleiðina eða með harðri úrskurðarákvörðun.
Með þessu hefur frestur eftirlitsins til að ljúka rannsókn á kaupunum á Öryggismiðstöðinni framlengst sjálfkrafa frá 9. október til 30. október, eða um fimmtán virka daga. Frestur til að ljúka rannsókn á kaupum Opinna kerfa er óbreyttur til fjórða nóvember.
Frummat Samkeppniseftirlitsins var að íhlutun væri nauðsynleg vegna kaupanna, samkvæmt andmælaskjali þess frá 15. september. Skjalið fól hvorki í sér bindandi stjórnvaldsákvörðun né endanlega afstöðu til kaupanna heldur var það liður í rannsókn á kaupunum.
Ásar skiluðu athugasemdum við andmælaskjalið 25. september og óskuðu eftir sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið. Tilkynnt var um fyrirhuguð kaup Ása á félögunum tveimur í desember í fyrra og fyrirtækið sendi inn samrunatilkynningu vegna beggja í apríl og maí.