Ný herskip, kafbátar og vopnakerfi eru á meðal stórtækra fjárfestinga Rússa á norðurslóðum.
Wes Streeting varnarmálaráðherra Bretlands og Tore O. Sandvik varnarmálaráðherra Noregs, sem sóttu varnarmálaráðherrafund Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar á Íslandi fyrir helgi, segja það aldrei hafa verið mikilvægara að efla samstarf og varnir Atlantshafsbandalagsins.
Rússar hafa nýverið gert tilraunir með nýjar langdrægar eldflaugar og neðansjávardróna sem geta borið kjarnavopn. Viðtal við ráðherrana tvo um stöðu Atlantshafsbandalagsins og varnir á norðurslóðum má sjá í spilaranum.