Bros, tár og stolt við heim­komuna - Vísir

Bros, tár og stolt við heim­komuna - Vísir

Bros, tár og stolt við heim­komuna - Vísir

Móttökurnar voru tilfinningaríkar þegar fjölskyldur, vinir og bakhjarlar tóku á móti liðinu með útbreiddan faðminn. Það má segja að tilfinningarnar hafi verið blendnar. Liðið ætlaði sér á verðlaunapall en náði engu að síður besta árangri sínum í sögunni. Sjóslysið í fyrradag hefur haft áhrif á allt samfélagið og einnig á fólkið sem hefur verið að keppa fyrir Íslands hönd á erlendri grundu.

Hugur allra er hjá þeim sem eiga um sárt að binda og því má með sanni segja að tilfinningar allra séu blendnar þegar kemur að því að fagna.

Íslenska kokkalandsliðið 2026: Hér má sjá liðið í heild sinni talið frá vinstri, Andrés Björgvinsson, Alexander Brynjarsson, Úlfar Örn Úlfarsson, Wiktor Pálsson, Bjarni Ingi Sigurgíslason, Gabriel Kristinn Bjarnason, Georg Arnar Halldórsson landsliðsþjálfarinn, Hugi Rafn Stefánsson, Ísak Aron Jóhannsson landsliðsfyrirliðinn, Aðalheiður Dögg , Bianca Tiantian Zhang, Alexander Batt Þorleifsson, Jafet Bergmann Viðarsson, Þorlákur Sigurðsson, Hákon Orri Stefánsson og Máni Gunnlaugsson.Eva Bjork AEgisdottir

Gull í báðum keppnisgreinum

Kokkalandsliðið kom heim með tvenn gullverðlaun. Liðið fékk gull í fyrri greininni, Restaurant of Nations, en þá eldaði það og framreiddi þriggja rétta kvöldverð fyrir 110 gesti. Seinni greinin, Chef’s Table, fór fram á þriðjudag. Þar gekk liðinu framúrskarandi vel og hreppti aftur gull.

Gull í hvorri grein miðast við að minnsta kosti 90 stig af 100 mögulegum. Samanlögð stig úr báðum greinum, af 200 mögulegum, réðu því hvaða landslið komust á verðlaunapall í heildarkeppninni.

Íslenska kokkalandsliðið 2026Eva Bjork AEgisdottir

Djúpt snortinn

Samheldni liðsins og keppnisgleðin voru allsráðandi allan tímann og allir gengu í takt. Georg Arnar Halldórsson, þjálfari íslenska kokkalandsliðsins, er djúpt snortinn af árangri liðsins þrátt fyrir að markmiðið hafi verið að komast á verðlaunapall.

„Ég er að rifna úr stolti. Þetta lið hefur sýnt okkur að litla landið okkar er miklu stærra en marga grunar og við eigum fjórða besta liðið í heimi þegar kemur að matreiðslu. Það er stórkostlegur árangur og það er ekki sjálfgefið að ná honum.“

Íslenska kokkalandsliðið 2026Eva Bjork AEgisdottir

Þegar liðið hóf undirbúning fyrir þessa keppni var ákveðið að fara óhefðbundna leið.

„Við lögðum upp með matargerð sem var töluvert frábrugðin því sem maður sér yfirleitt í svona keppnum. Við tókum meðvitaða áhættu og vissum að það gæti annaðhvort gengið upp eða ekki, og það virðist hafa skilað okkur langt.

Árangurinn sem við höfum náð í keppninni er ekki tilviljun og það eru miklar fórnir sem hver og einn þurfti að færa til að komast svona langt. Að baki þessum árangri liggur gríðarlega mikill undirbúningur. Mörg löng kvöld, erfiðar æfingar, ótal áskoranir og fyrst og fremst mikill vilji hjá öllum sem að komu til að fara alla leið. Ekki má heldur gleyma því frábæra baklandi sem við höfum hér heima og hefur staðið þétt við bakið á liðinu allan tímann,“ segir Georg með þakklæti.

Íslenska kokkalandsliðið 2026Eva Bjork AEgisdottir

Stoltur af liðinu

Fyrirliði kokkalandsliðsins, Ísak Aron Jóhannsson, er orðinn reynslumikill í keppnismatreiðslu en hann var einnig fyrirliði þegar kokkalandsliðið hreppti bronsið á Ólympíuleikunum í matreiðslu í Stuttgart árið 2024.

Íslenska kokkalandsliðið 2026Eva Bjork AEgisdottir

„Okkur líður mjög vel og það er góð tilfinning að ná þessum árangri, þó að okkur hafi langað að fara alla leið. Okkur langaði alla leið á toppinn og að koma heim með þriðja gullið, en það verður næsta markmið.

Ég er afar stoltur af liðinu okkar og sérhver aðili í liðinu er ómissandi og spilar stórt hlutverk. Með samheldni og viljann að vopni getum við allt,“ segir Ísak Aron með bros á vör.

Þórunn kærasta Ísaks Arons og móðir hans Erna fögnuðu liðinu við heimkomuna.Eva Bjork AEgisdottir

„Keppnisandinn var alltaf til staðar og kom okkur í gegnum þetta. Við létum aldrei slá okkur út af laginu og tókumst á við allar áskoranir sem fyrir okkur voru lagðar með yfirvegun og jafnaðargeði. Það eru forréttindi að vera í þessu liði og fyrst við gátum þetta getum við allt þegar kemur að keppnismatreiðslu,“ segir Ísak og er strax farinn að huga að næstu keppni.

Íslenska kokkalandsliðið klappaði fyrir bakhjörlum sínum.Eva Bjork AEgisdottir

Langur og strangur undirbúningur að baki

Alls voru 22 einstaklingar í íslenska hópnum sem hélt til Lúxemborgar og stóðu að baki þessum árangri. Í hópnum voru keppendur, þjálfarar og aðstoðarfólk. Undirbúningurinn hefur staðið yfir í tvö ár og hver og einn í hópnum hefur lagt um 1.200 vinnustundir í verkefnið, samhliða daglegum störfum. Verkefnið hefur verið kostnaðarsamt og Klúbbur matreiðslumeistara hefur staðið í ströngu við að afla öflugra bakhjarla til að styðja við bakið á liðinu og gera því kleift að taka þátt í stórmóti sem þessu. Stuðningur allra skiptir máli og margt smátt gerir eitt stórt þegar á hólminn er komið.

Níunda heimsmeistaramótið frá árinu 1994

Þetta er níunda heimsmeistaramót íslenska kokkalandsliðsins frá árinu 1994. Árið 2014 fékk liðið gull í báðum greinum og varð í fimmta sæti samanlagt. Liðið hefur einnig keppt átta sinnum á Ólympíuleikunum í matreiðslu og hreppti þriðja sæti í heildarkeppninni á síðustu tveimur Ólympíuleikum, árin 2020 og 2024.

Sjáið myndirnar!

Glæsiparið Ísak Aron og Þórunn.Eva Bjork AEgisdottir
Andrés Björgvinsson landsliðskokkur og Rafn Ingólfsson félagi í Klúbb matreiðslumeistara í góðum félagsskap.Eva Bjork AEgisdottir
Snædís Jónsdóttir ásamt syni sínum Helga, Marlis Jóna í öflugum bakhjarlahópi.Eva Bjork AEgisdottir
Georg Arnar Halldórsson, Andrés Björgvinsson, Jafet Bergmann Viðarsson, Gabríel Kristinn Bjarnason og Úlfar Örn Úlfarsson.Eva Bjork AEgisdottir
Liðinu var ákaft fagnað.Eva Bjork AEgisdottir
Gleðin var í fyrirrúmi.Eva Bjork AEgisdottir
Íslenska kokkalandsliðið fékk góðar móttökur.Eva Bjork AEgisdottir
Guðlaugur Þór Þórðarson og Sjöfn Þórðardóttir.Eva Bjork AEgisdottir
Guðlaugur Þór Þórðarson og Einar Bárðarson.Eva Bjork AEgisdottir
Bræðurnir Hugi Rafn Stefánsson og Hákon Orri Stefánsson í góðum félagsskap.Eva Bjork AEgisdottir
Úlfar Örn Úlfarsson með fjölskyldu sinni.Eva Bjork AEgisdottir
Rafn Ingólfsson og Magnús Guðmarsson í góðum félagskap.Eva Bjork AEgisdottir
Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara með góðu fólki.Eva Bjork AEgisdottir
Landsliðinu fagnað.Eva Bjork AEgisdottir
Bros og gleði.Eva Bjork AEgisdottir
Andrés með sínum bestu.Eva Bjork AEgisdottir
Sáttir við uppskeru liðsins.Eva Bjork AEgisdottir
Bjarni Ingi Sigurgislason landsliðskokkur var glaður með stuðninginn.Eva Bjork AEgisdottir
Móttökrunar voru góðar.Eva Bjork AEgisdottir
Sjöfn Þórðardóttir, Snædís Jónsdóttir og Lárus B. Lárusson.Eva Bjork AEgisdottir
Jafet fékk blómvönd við heimkomuna.Eva Bjork AEgisdottir
Þorlákur, Andrés, Wiktor og Alexander.Eva Bjork AEgisdottir
Bianca Tiantian Zhang með fólkinu sínu.Eva Bjork AEgisdottir
Faðmlögin voru allsráðandi.Eva Bjork AEgisdottir
Árangrinum fagnað.Eva Bjork AEgisdottir
Gleðin.Eva Bjork AEgisdottir
Gabríel Kristinn Bjarnason, Ísak Aron og Hugi Rafn Stefánsson.Eva Bjork AEgisdottir

#bros #heimkomuna #stolt #tár #við

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262969622d/bros-tar-og-stolt-vid-heim-komuna

📰 Aðrar fréttir

Getur ekki svarað fyrir um­deild um­mæli Frederik­sen - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 0
Getur ekki svarað fyrir um­deild um­mæli Frederik­sen - Vísir
Frederiksen olli nokkrum úlfaþyti í dönskum stjórnmálum í vikunni með ummælum um útlendingamál í hlaðvarpi fjölmiðilsins B.T. Sérstaklega fór tilvísun...
Eisenkot þyggur boð Netanjahús um stjórnarmyndun
📅 28.11.2026 👁️ 0
Eisenkot þyggur boð Netanjahús um stjórnarmyndun
Gadi Eisenkot, leiðtogi Yashar-flokksins í Ísrael, hefur þegið boð Benjamíns Netanjahús, starfandi forsætisráðherra, um stjórnarmyndunarviðræður. Neta...
Mál leikskólastarfsmannsins á Akra­nesi fellt niður - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 0
Mál leikskólastarfsmannsins á Akra­nesi fellt niður - Vísir
Þetta kemur fram í svari Karls Inga Vilbertssonar varahéraðssaksóknara við fyrirspurn Vísis. Málið fór til ákærenda þann 14. september og var hans hlu...
Hópur gegn hatri gagnrýndur fyrir gróft persónuníð – jafnvel skoðanaandstæðingar ritstjóra Fréttarinnar mótmæla framgöngunni
📅 28.11.2026 👁️ 0
Hópur gegn hatri gagnrýndur fyrir gróft persónuníð – jafnvel skoðanaandstæðingar ritstjóra Fréttarinnar mótmæla framgöngunni
Hópur gegn hatri gagnrýndur fyrir gróft persónuníð – jafnvel skoðanaandstæðingar ritstjóra Fréttarinnar mótmæla framgöngunni Fréttin28. nóvember 2026I...
„Það verður ekki einn einasti dagur eftir þetta sem ég þakka ekki fyrir“
📅 28.11.2026 👁️ 1
„Það verður ekki einn einasti dagur eftir þetta sem ég þakka ekki fyrir“
Markús Már Eldjárn Arnórsson, 22 ára sjómaður, segir að hann hafi ekki óttast að hann myndi farast þegar Jökull ÞH sökk á miðvikudagskvöldið austur af...
Neita að borga meira fyrir hest sem þurfti að fella
📅 28.11.2026 👁️ 1
Neita að borga meira fyrir hest sem þurfti að fella
Ónefnt tryggingafélag hefur neitað að fara eftir úrskurði úrskurðarnefndar í vátryggingamálum um að því beri að greiða eiganda hests frekari bætur en ...
Stærðarinnar skjálfti skekur Los Angeles - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 1
Stærðarinnar skjálfti skekur Los Angeles - Vísir
Skjálftinn reið þar yfir um klukkan 9.30 að staðartíma, eða 17.30 að íslenskum tíma. Upptök skjálftans voru um 30 kílómetrum suðvestur af miðborg Los ...
Hvað eru gervigreindarárásir?
📅 28.11.2026 👁️ 2
Hvað eru gervigreindarárásir?
Berjast verður við gervigreind með gervigreind. Þetta er niðurstaða Defend Iceland, fyrirtækis sem sérhæfir sig í net-, tölvu- og hugbúnaðarárásum.Með...
Aðventustemning í Kópa­vogi - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 2
Aðventustemning í Kópa­vogi - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá bænum. Í menningarhúsum Kópavogs var boðið upp á tónleika, jólaverkstæði, dans og heitt kakó. Í Salnum var opnuð...
Saka Ísrael um að koma viljandi í veg fyrir fæðingar á Gaza
📅 28.11.2026 👁️ 1
Saka Ísrael um að koma viljandi í veg fyrir fæðingar á Gaza
Mannréttindasamtökin Amnesty International segja Ísrael viljandi koma í veg fyrir fæðingar á Gaza og eyða Palestínumönnum. Það sé gert með því að bein...
Krefjandi aksturs­skil­yrði á Reykja­nes­braut - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 1
Krefjandi aksturs­skil­yrði á Reykja­nes­braut - Vísir
„Akstur um Reykjanesbraut, sem og aðra vegi, getur verið nokkuð krefjandi við þær aðstæður sem nú eru uppi. Slydda og krapi á akbrautum geta valdið þv...
Hús­fé­lag mátti ekki sekta í­búa vegna fjar­veru á tiltektardögum - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 3
Hús­fé­lag mátti ekki sekta í­búa vegna fjar­veru á tiltektardögum - Vísir
Þetta er niðurstaða kærunefndar húsamála í máli íbúðareiganda í fjölbýli gegn húsfélagi sínu. Þó féllst nefndin ekki á aðrar kröfur íbúans, sem reyndi...
Mikið að baki endurnýjun á vef Veðurstofunnar
📅 28.11.2026 👁️ 3
Mikið að baki endurnýjun á vef Veðurstofunnar
Nýr vefur Veðurstofu Íslands fól ekki einungis í sér endurhönnun á notendaviðmóti eða útliti vefjarins heldur umfangsmikla endurnýjun á innviðum tengd...
Vilhelm Jónsson skrifar: Krónan má ekki deyja – þjóðin má fara á hausinn
📅 28.11.2026 👁️ 3
Vilhelm Jónsson skrifar: Krónan má ekki deyja – þjóðin má fara á hausinn
Á Íslandi hefur legið fárveikur sjúklingur á gjörgæslu áratugum saman. Læknarnir eru enn bjartsýnir, bankarnir birta feitar afkomutölur en aðstandendu...
Ferð á N1 reyndist Íslendingi heldur betur til lukku
📅 28.11.2026 👁️ 2
Ferð á N1 reyndist Íslendingi heldur betur til lukku
Meðal vinningshafa í útdrætti gærkvöldsins í Euro-Jackpot var Íslendingur en hann keypti miðann hjá N1 á Ártúnshöfða.Þetta kemur fram í tilkynningu fr...
Líkt og „ein­hverjir komi með stóra sleggju og lemji í húsið“ - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 4
Líkt og „ein­hverjir komi með stóra sleggju og lemji í húsið“ - Vísir
Greint var frá skjálftanum í  tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofunnar um fimmtán mínútur gengnar í tólf á hádegi en þar sagði einnig að mjög lít...
Myanmar: Dozens killed in air strikes, including at wedding
📅 28.11.2026 👁️ 2
Myanmar: Dozens killed in air strikes, including at wedding
Air strikes by Myanmar's military government have killed dozens of civilians across the South East Asian nation in recent days.
Myanmar: Dozens killed in military strikes on wedding venue and school

Mennirnir sem fórust með Jökli ÞH 299 - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 3
Mennirnir sem fórust með Jökli ÞH 299 - Vísir
Fjórtán öðrum skip­verjum var bjargað í um­fangs­miklum björgunar­að­gerðum. Kristinn Hrannar Hjalta­son, skip­stjóri á Jökli ÞH 299, minntist skips­b...
Icelandair til­kynnir síðasta á­ætlunar­flug á Boeing 757 - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 2
Icelandair til­kynnir síðasta á­ætlunar­flug á Boeing 757 - Vísir
Boeing 757-þotan hefur þegar skapað sér sess sem einhver merkasta flugvél íslenskrar flugsögu. Engin önnur farþegaflugvél hefur þjónað Íslendingum jaf...
DWP confirms confirms cyber attack forced it to take pension and benefits systems offline
📅 28.11.2026 👁️ 0
DWP confirms confirms cyber attack forced it to take pension and benefits systems offline
Work and Pensions Secretary Pat McFadden says services would be restored as soon as possible but could not confirm when that may be.
Why having enough space to sleep comfortably matters for your wellbeing
📅 28.11.2026 👁️ 2
Why having enough space to sleep comfortably matters for your wellbeing
Most conversations about sleep focus on how long we sleep and when. The amount of physical space we sleep in gets far less attention, yet it affects h...
Burnham's No 10 influencer row shows reach matters - but so does scrutiny
📅 28.11.2026 👁️ 2
Burnham's No 10 influencer row shows reach matters - but so does scrutiny
Prime ministers have always chased audiences - but does the backlash over Max Balegde’s video show Burnham’s strategy has gone too far?
Two tourists caught illegally climbing Roque Nublo at night
📅 28.11.2026 👁️ 3
Two tourists caught illegally climbing Roque Nublo at night
Two foreign tourists have been reported by the Guardia Civil after climbing Roque Nublo in Gran Canaria at night without the necessary authorisation.T...
Fékk að heyra það eftir að hafa sent samúðarkveðjur vegna hinna látnu á Jökli
📅 28.11.2026 👁️ 3
Fékk að heyra það eftir að hafa sent samúðarkveðjur vegna hinna látnu á Jökli
Paul Watson sem barist hefur gegn hvalveiðum Íslendinga áratugum sáman og eldað grátt silfur við t.d. Kristján Loftsson og Landhelgisgæsluna fékk ekki...
Lögreglumenn sáu ungling í gulri hettupeysu - Það sem gerðist næst dró dilk á eftir sér
📅 28.11.2026 👁️ 2
Lögreglumenn sáu ungling í gulri hettupeysu - Það sem gerðist næst dró dilk á eftir sér
Nefnd um eftirlit með lögreglu minnir lögregluna á Suðurnesjum á að mikilvægt sé að hún eigi að hafa samband við foreldra eða forráðamenn einstaklinga...
Netárásir ein helsta ógnin í dag
📅 28.11.2026 👁️ 4
Netárásir ein helsta ógnin í dag
Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarna ríkislögreglustjóra, segir netárásir á mikilvæga innviði eina helstu ógnina sem steðjar að íslensku sam...
Byggja þurfti traust á milli lögreglu og héraðssaksóknara
📅 28.11.2026 👁️ 3
Byggja þurfti traust á milli lögreglu og héraðssaksóknara
Fulltrúar Landssambands lögreglumanna áttu sáttafund í gær með Ólafi Þór Haukssyni héraðssaksóknara og Karli Inga Vilbergssyni varahéraðssaksóknara um...
Ör­verpið sem hún kvaddi bannaði henni að fara um borð - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 2
Ör­verpið sem hún kvaddi bannaði henni að fara um borð - Vísir
Jónína hóf sjómennskuferil sinn rétt eftir að yngsti sonur hennar fæddist og átti sami sonur eftir að ráðleggja henni að fara ekki um borð í Jökul ÞH....
„Hlýtur að vera lognið á undan storminum“ - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 1
„Hlýtur að vera lognið á undan storminum“ - Vísir
„Staðan er þannig að viðbragðsaðilar eru að tala sig saman og við erum að undirbúa okkur undir þennan veðurhvell sem kemur í kvöld,“ segir Jóhann í sa...
Hefja undir­búning fyrir enn einn storminn - Vísir

Spurt á förnum vegi: „Hvað er eðlilegt að gefa maka dýra gjöf?“
📅 28.11.2026 👁️ 1
Spurt á förnum vegi: „Hvað er eðlilegt að gefa maka dýra gjöf?“
DV fór á stúfana í síðustu viku og forvitnaðist um hvað fólk telur eðlilega upphæð fyrir jólagjöf til maka. Svörin voru áhugaverð. Sumir nefndu upphæð...
Talíbanar banna nöfn kvenna á lyfseðlum: Konur kallaðar „amma“
📅 28.11.2026 👁️ 1
Talíbanar banna nöfn kvenna á lyfseðlum: Konur kallaðar „amma“
Talibanar í Balkh-héraði í norðurhluta Afganistan fyrirskipuðu í maí 2026 að nota orðið „Bibi“ í stað nafna kvenna á sjúkrahúsum, einkastofum og heils...
Swinney insists Scotland's NHS is safe despite hospital scandal
📅 28.11.2026 👁️ 1
Swinney insists Scotland's NHS is safe despite hospital scandal
The first minister urged people to attend medical appointments after a leaked report highlighted avoidable deaths at NHS Grampian.
Gagnrýnir fréttaflutning RÚV og spyr hvort sömu viðmiðum sé beitt gagnvart öllum ríkjum í Eurovision
📅 28.11.2026 👁️ 1
Gagnrýnir fréttaflutning RÚV og spyr hvort sömu viðmiðum sé beitt gagnvart öllum ríkjum í Eurovision
Gagnrýnir fréttaflutning RÚV og spyr hvort sömu viðmiðum sé beitt gagnvart öllum ríkjum í Eurovision Fréttin28. nóvember 2026Fjölmiðlar, Innlent, Mið-...
Man arrested on suspicion of murder of girl in east London
📅 28.11.2026 👁️ 3
Man arrested on suspicion of murder of girl in east London
The girl was found at a property in east London on Friday afternoon after fears about her welfare.
Sigmundur Ernir skrifar: Það er stórt orð stórveldi
📅 28.11.2026 👁️ 3
Sigmundur Ernir skrifar: Það er stórt orð stórveldi
Það er stórt orð Hákot, eins og löngum hefur verið rætt og ritað, og það sama verður líka sagt um stórveldi, enda hefur okkur staðið ógn af því fyrirb...
Yfirbuguðu mann vopnaðan hnífi - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 3
Yfirbuguðu mann vopnaðan hnífi - Vísir
Sigrún Jónasdóttir lögreglufulltrúi sagði frá því í samtali við fréttastofu að betur hefði farið en á horfðist en hún greindi einnig frá því að útkall...
Nauðsynlegt fyrir skipverja á Jökli ÞH að ræða slysið
📅 28.11.2026 👁️ 1
Nauðsynlegt fyrir skipverja á Jökli ÞH að ræða slysið
Rætt var um öryggismál á sjó í Vikulokunum í dag og eftirmála þess að þrír menn fórust og 14 var bjargað þegar fiskiskipið Jökull ÞH sökk austur af la...
Hundruð Ís­lendinga að­stoða glæpa­menn við netsvik - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 2
Hundruð Ís­lendinga að­stoða glæpa­menn við netsvik - Vísir
Fyrir tveimur árum síðan voru tilkynningar um netbrot til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu 153 talsins en í ár eru þau 2359 talsins og þannig fimmtán...
Læknar án landamæra segja Ísraelsher hafa vitað af staðsetningu heilsugæslu
📅 28.11.2026 👁️ 2
Læknar án landamæra segja Ísraelsher hafa vitað af staðsetningu heilsugæslu
Tveir starfsmenn hjálparsamtakanna Lækna á landamæra voru drepnir í loftárás Ísraelshers á heilsugæslu samtakanna í Gazaborg. Samtökin segja herinn ha...
Tröllateiknarinn Pilkington fagnar 50 ára starfsafmæli
📅 28.11.2026 👁️ 2
Tröllateiknarinn Pilkington fagnar 50 ára starfsafmæli
Teikningar Brians Pilkingtons birtast í hugum heilu kynslóðanna þegar minnst er á tröll, Grýlu, Leppalúða og gömlu jólasveinana.Brúður gömlu jólasvein...
Free Starlink Wi-Fi launches on flights to the Canary Islands
📅 28.11.2026 👁️ 3
Free Starlink Wi-Fi launches on flights to the Canary Islands
Iberia Express has begun rolling out free high-speed Wi-Fi powered by Starlink on its aircraft, bringing improved internet access to passengers travel...
Óvíst hvort hægt verður að nálgast skipsflakið á hafsbotni
📅 28.11.2026 👁️ 1
Óvíst hvort hægt verður að nálgast skipsflakið á hafsbotni
Lögreglan og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka atburði miðvikudagsins 25. nóvember, þegar Jökull ÞH sökk austur af landi. Gagnasöfnun er hafin og...
L'Incontro: twelve years of Italian cooking and wood-fired pizza in Playa Paraíso
📅 28.11.2026 👁️ 2
L'Incontro: twelve years of Italian cooking and wood-fired pizza in Playa Paraíso
In an area where many restaurants have changed hands, L'Incontro, an Italian restaurant in Playa Paraíso in the municipality of Adeje, has had the sam...
Fjórða björgunarþyrlan á Akureyri gæti tekið allt að þrjú ár – kanna nú leigu á bráðabirgðaþyrlu
📅 28.11.2026 👁️ 4
Fjórða björgunarþyrlan á Akureyri gæti tekið allt að þrjú ár – kanna nú leigu á bráðabirgðaþyrlu
Fjórða björgunarþyrlan á Akureyri gæti tekið allt að þrjú ár – kanna nú leigu á bráðabirgðaþyrlu Fréttin28. nóvember 2026Innlent, ÖryggismálLeave a Co...
Sögulegur ósigur Verkamannaflokksins í Victoria – tólf ára stjórn á enda
📅 28.11.2026 👁️ 3
Sögulegur ósigur Verkamannaflokksins í Victoria – tólf ára stjórn á enda
Sögulegur ósigur Verkamannaflokksins í Victoria – tólf ára stjórn á enda Fréttin28. nóvember 2026Erlent, KosningarLeave a Comment Mikil valdaskipti bl...
TF-GNÁ væntan­leg úr við­gerð en kominn tími á TF-GRÓ - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 3
TF-GNÁ væntan­leg úr við­gerð en kominn tími á TF-GRÓ - Vísir
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. TF-GRÓ var eina þyrla Landhelgisgæslunnar sem v...
Gular veðurviðvaranir taka gildi í kvöld – stormur, hríð og erfið akstursskilyrði
📅 28.11.2026 👁️ 2
Gular veðurviðvaranir taka gildi í kvöld – stormur, hríð og erfið akstursskilyrði
Gular veðurviðvaranir taka gildi í kvöld – stormur, hríð og erfið akstursskilyrði Fréttin28. nóvember 2026Innlent, VeðurLeave a Comment Veður fer vers...
Sálfræðiaðstoð við lögreglumenn skert um 40 prósent vegna fjárskorts
📅 28.11.2026 👁️ 3
Sálfræðiaðstoð við lögreglumenn skert um 40 prósent vegna fjárskorts
Sálfræðiaðstoð við lögreglumenn skert um 40 prósent vegna fjárskorts Fréttin28. nóvember 2026InnlentLeave a Comment Embætti ríkislögreglustjóra hefur ...