Teikningar Brians Pilkingtons birtast í hugum heilu kynslóðanna þegar minnst er á tröll, Grýlu, Leppalúða og gömlu jólasveinana.
Brúður gömlu jólasveinanna hafa komið sér fyrir í jólahúsi í Safnahúsinu á Hverfisgötu. Þær eru byggðar á teikningum Brians Pilkingtons. Hann fagnar nú 50 ára starfsafmæli og fjölskyldan vann saman að húsinu.
„Það er miklu meira gaman að teikna eitthvað gamalt heldur en nýtt og fallegt fólk. Það er gaman að gefa þeim svona stór nef og stór eyru og svoleiðis,“ segir Brian kíminn. „Ég er orðinn jólasveinn sjálfur.“
Brian og fjölskylda hans hafa frá því í apríl unnið kauplaust í frítíma að því að búa til jólahús með jólasveinunum þrettán.