Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. TF-GRÓ var eina þyrla Landhelgisgæslunnar sem var til taks þegar skipið Jökull ÞH fórst á miðvikudag. Þrír létust og fjórtán var bjargað.
„Staðan er sú að við erum með eina þyrlu til taks, TF-Gró, sem sinnti útkallinu á miðvikudag. Hin þyrlan sem er ekki í langtímaskoðun, TF-GNÁ, gerum við ráð fyrir að verði aftur orðin útkallshæf í lok næstu viku. Fljótlega upp frá því þurfum við að stoppa TF-GRÓ, í nokkra daga. Það er útlit fyrir það að við verðum með eina þyrlu til taks næstu tvær vikurnar. “
Þyrlur þurfa mikið viðhald og því ekki mögulegt að hafa tvær þyrlur til taks nema hluta árs við núverandi aðstæður.
„Það er þannig að á móti einum flugtíma eru átta til níu viðhaldstímar. Þetta eru tæki sem þurfa mjög mikið viðhald. Það eru síðan skoðanir sem þessar þyrlur þurfa að fara í með reglubundnum hætti. Við í raun og veru vinnum þetta með þessum hætti og vonumst auðvitað til þess að hafa tvær þyrlur stærstan hluta ársins en vitum á sama tíma að það er í raun og veru í kringum 65 prósent ársins sem við eigum kost á því að vera með tvær útkallsklárar þyrlur og tvær áhafnir til taks.“
Ákveðið var á fundi ríkisstjórnarinnar í gær að hefja uppbyggingu flugskýlis á Akureyri í byrjun næsta árs. Fjórða þyrlan verði vonandi tilbúin innan tveggja ára en hún verður staðsett á Akureyri.
„Við erum auðvitað fyrst og fremst mjög þakklát fyrir að það sé búið að taka ákvörðun um að ráðast í að fá fjórðu þyrluna í flotann og hafa aðstöðu fyrir hana á Akureyri. Sú vinna og sá undirbúningur var í raun og veru hafin þar sem við vorum tilbúin í samráði við dómsmálaráðuneytið ef þessi ákvörðun hefði legið fyrir. Vinnan er þegar hafin við að finna þessa fjórðu þyrlu sem vonandi kemur fyrr en seinna í flotann.“