Á þessum dögum fyllist Akureyri af ungum knattspyrnuiðkendum og fjölskyldum þeirra hvaðanæva af landinu en N1 mótið er eitt stærsta og vinsælasta knattspyrnumót landsins. Á Pollamótinu taka þátt kempur kvenna og karla í eldri kantinum sem rifja upp gamla takta í knattspyrnu. Bylgjulestin missir ekki af neinu og tekur púlsinn á gestum og þátttakendum.
Lukkkuhjól Bylgjulestarinnar verður á fleygiferð og geta heppnir gestir unnið gjafabréf frá N1 , frískandi 7up Pink drykki, Kitkat og áskrift að Sýn+. Talaria rafmótorhjól og IKAMPER tjöld verða sýnd á svæðinu og Samgöngustofa fjallar um umferðaröryggi.
Næstu stopp Bylgulestarinnar:
- 11. júlí Kótelettan á Selfossi
- 18. júlí Götubitahátíðin í Hljómskálagarðinum
- 25. júlí Bylgjulestar útilega á Flúðum