Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
Þegar Hólmfríður Helga Sigurðardóttir lagði hjólandi af stað í vinnuna í síðustu viku grunaði hana ekki hvað var í vændum. Hún varð fyrir bíl og þar sem hún lá slösuð á bráðamóttöku var henni sagt upp störfum sem upplýsingafulltrúi í Ráðhúsinu. Hún segir frá því þegar hún fékk „ tvö rothögg á einum örlagaríkum degi“.
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir, sem hefur undanfarin ár starfað sem upplýsingafulltrúi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, deildi með vinum sínum á Facebook sögunni af því þegar hún fékk „tvö rothögg á einum örlagaríkum degi“.
„Hér er lítil saga af því. Á fimmtudagsmorguninn, fyrir viku síðan í dag, lagði ég af stað hjólandi út í daginn. Ég var að rúlla yfir Kringlumýrarbrautina á grænum gönguljósum þegar ég var keyrð niður.
Ég sá bílinn koma á fullri ferð og tíminn hægði á sér. Þegar höggið kom og meðan fluginu stóð hugsaði ég: „Ég er að lenda í slysi núna. Verð að vanda mig og lenda vel.“ Stórundarleg lífsreynsla.
Nokkrum klukkustundum síðar, þar sem ég lá á bráðamóttökunni, komst ég að því að mér og nær öllu mínu frábæra og hæfileikaríka samstarfsfólki úr Ráðhúsinu hafði verið sagt upp störfum,“ skrifar hún.
Nú kallar hún eftir gleðivekjandi efni á meðan hún reynir að jafna sig. „Ég er öll marin og blá frá toppi til táar, illa viðbeinsbrotin, mjög fjögur brotin rifbein og hluti tveggja hryggjarliða, þvertindarnir, eru brotnir. Svo fékk ég svokallað loftbrjóst og virkilega hressilegan heilahristing. Ég er ansi aum og löskuð en vá, hvað ég er þakklát fyrir að vera á lífi.“
Hún sé heppin að eiga góða batavon. Sem betur fer er hún umkringd góðu fólki sem hjálpar til og léttir lund. „Í þeim vinahópi er líka fólkið mitt hjá borginni, bæði í Borgartúninu og Ráðhúsinu. Ég vann á báðum stöðum og átti því óvenjustóran hóp vinnufélaga. Ef þið bara vissuð hvað það er margt frábært fólk að störfum þarna, fólk sem vinnur verk sín vel og af metnaði, notar bæði heila og hjarta til þess. Það er ekki öllum gefið. Mun sakna þess að vinna með þeim en á þau sem vini áfram.“