Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir umræðuskjal Samkeppnisstofnunar um að olíufélögin hafi aukið álagningu sína um 25 og 50 prósent á síðustu árum ekki koma sér á óvart.
„Þetta er ekki ný saga. Við þekkjum það að fyrir 30 árum voru þessir frægu Öskjuhlíðarfundir. Nú þurfa menn ekki Öskjuhlíðar til að koma sér saman um eitthvað. Þetta er klassískur fákeppnismarkaður. Það er með ólíkindum hvað þessi fyrirtæki hafa verið stórtæk í því að vera með alltof háa álagningu.“
Runólfur segir að álagning sé sú mesta sem sjáist í viðmiðunarlöndum þó að búið sé að taka tillit til fjarlægðar og smæðar markaðar. Hann segir metafkomu Haga á síðasta ári og í byrjun þessa skýrast að hluta af óvæntum auka hagnaði af sölu eldsneytis.
Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins og Samtaka verslunar og þjónustu gagnrýndu í gær framsetningu Samkeppnisstofnunar. Runólfur gefur lítið fyrir það.
„Það er ekki nóg að setja fyrir framan alþjóð einhvern fulltrúa Samtaka atvinnulífsins sem reyna að segja að það sé ekki öll sagan sögð og segja svo ekki neitt. Segið okkur hvers vegna erum við að borga milli 60 og 70 krónur í álagningu á hvern lítra af bensíni á meðan Svíar eru að borga eina sænska krónu,“ sagði Runólfur Ólafsson í Fram undan á Rás 2.