Það verður skúrakennt norðan- og austanlands í dag en yfirleitt bjart og hlýtt sunnan heiða. Það bætir í vind norðan- og austanlands á morgun en lægir aftur aðfaranótt sunnudags. Á sunnudag verður þurrt að mestu og norðlægar eða breytilegar áttir á öllu landinu, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:
Vestlægar áttir verða ríkjandi í dag vegna lægðar norðvestur af landinu á norðausturleið. Meðan á því ferðalagi stendur verður skúrakennt norðan- og austanlands og hiti 6 til 15 stig, en yfirleitt bjart og hlýtt sunnan heiða með hita að 17 stigum.
Seinnipart dagsins virðist lægðin ætla að staldra við norður af Langanesi þar sem hún nær að dýpka örlítið og því bætir heldur í vind á norðaustan- og austanverðu landinu á laugardag. Á laugardagskvöld og aðfaranótt sunnudags dregur úr vindi þegar
lægðin heldur leið sinni áfram í átt að vesturströnd Noregs.
Á sunnudag verður þurrt að mestu og hægar norðlægar eða breytilegar áttir á öllu landinu, en einhver strekkingur gæti þó verið norðaustast fram eftir degi.
Búast má við litlum breytingum á mánudag, en á þriðjudag er útlit fyrir að við fáum yfir landið vætusöm skil frá lægð við suðausturströnd Grænlands sem verður þá að fikra sig nær Íslandi. Líklega verður sú lægð eitthvað lengur að stríða okkur þá vikuna með úrkomusömu en hlýju veðri.