Heppinn Íslendingur vann tæpar 65 milljónir króna þegar hann fékk 3. vinning í Eurojackpot.Rúmlega fimmtugur karlmaður, sem spilar reglulega í leikjum íslenskrar Getspár, neyddist til að taka örlitla pásu á annasömum vinnudegi vegna hægagangs samstarfsfélaga. Á meðan hann beið heyrði hann Eurojackpot-auglýsingu í útvarpinu og var ekki lengi að grípa símann, opna lottó appið og kaupa einn miða með sjálfvali.
Vinnupása skilaði vinningi - Fimmtugur Íslendingur getur þakkað hægagangi vinnufélaga fyrir