Neytendastofa hefur sektað fjögur fyrirtæki sem sinna gjaldheimtu fyrir bílastæði. Fyrirtækin eru staðsett víðs vegar um landið.
Þetta kemur fram í ákvörðun Neytendastofu. Gerð var úttekt á upplýsingagjöf og viðskiptaháttum fjögurra fyrirtækja: Sannra landvætta, sem sjá um rekstur þriggja bílastæða á landsbyggðinni, Kvasis lausna, sem reka 10 bílastæði víða um land, bílastæðin í bílakjallaranum Hamraborg og Landspítalanum á Hringbraut í umsjá Green parking, og bílastæða Isavia innanlandsflugvalla, á Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli.
Í úrskurði Neytendastofu kemur fram að fyrirtækið Sannir landvættir hafi með starfsháttum sínum viljandi villt fyrir um viðskiptavinum, vangreiðslugjald ekki birt með áberandi og auðsjáanlegum hættu á upplýsingaskiltum bílastæðanna. Þeim var gert að greiða 250.000 krónur.
Neytendastofa taldi villandi að Isavia innanlandsflugvellir auglýstu „sjálfvirka gjaldtöku“ án þess að skýra að notendur þyrftu sjálfir að virkja hana. Þeim var gert að greiða alls 200.000 krónur.
Green parking var gert að greiða 400.000 krónur þar sem Neytendastofa taldi að fyrirtækið hefði ekki farið að fyrri ákvörðun sinni. Upplýsingar um raunveruleg gjöld væru enn ófullnægjandi og merkingar á sumum gjaldsvæðum gátu valdið ruglingi.
Fyrirtækið Kvasir lausnir, var sektað vegna margvíslega annmarka á upplýsingagjöf. Í ákvörðuninni kemur fram að fyrirtækið hafi veitt villandi upplýsingar um greiðsluleiðir og aukagjöld, merkingar um gjaldskyldu hafi einnig verið ófullnægjandi og verðskrár ekki nægilega sýnilegar.