Landsréttur hefur staðfest áframhaldandi farbann yfir Quang Lé, sakborningi í umfangsmesta mansalsmáli sem íslenska lögreglan hefur rannsakað. Quang Lé er meðal annars grunaður um mansal, skjalafals og peningaþvætti og brotaþolar í málinu eru 29, að því er fram kemur í úrskurði Landsréttar.
Quang Lé var handtekinn og sætti gæsluvarðhaldi frá 6. mars 2024 en var síðan sleppt og úrskurðaður í farbann 13. júní sama ár. Hann hefur því sætt farbanni í rúm tvö ár og nú hefur Landsréttur staðfest nýjasta farbannsúrskurðinn, sem gildir til 1. september.
Síðasti farbannsúrskurður var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag, 1. júlí, en samkvæmt honum átti Quang Lé a sæta farbanni til 25. september.
Lögmaður hans skaut málinu til Landsréttar, sem féllst á að játa Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu svigrúm til að ljúka rannsókninni. Landsréttur stytti farbannið þó til 1. september til samræmis við fyrirætlanir lögreglustjórans um að ljúka rannsókn málsins í lok ágúst.