Alexandra Jóhannesdóttir hefur verið ráðin bæjarstjóri Suðurnesjabæjar. Hún hefur gegnt starfi sveitar- og hafnarstjóra á Skagaströnd undanfarin átta ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Suðurnesjabæ.
Gert er ráð fyrir að ráðningin verði staðfest á fundi 15. júlí. Alls bárust 26 umsóknir um starfið en tveir umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka.
Áður starfaði Alexandra sem lögfræðingur hjá Listahátíð í Reykjavík og Fiskistofu. Hún er með B.A.-gráðu og Mag.jur.-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands.
Nýi bæjarstjórinn hefur einnig sinnt fjölmörgum stjórnunar- og trúnaðarstörfum, meðal annars sem framkvæmdastjóri félags- og skólaþjónustu Austur-Húnavatnssýslu, formaður Almannavarnarnefndar Austur-Húnavatnssýslu, varaformaður Samgönguráðs og varaformaður Hafnasambands Íslands.
„Það eru mikil forréttindi að fá tækifæri til að leiða Suðurnesjabæ á þessum spennandi tíma í þróun sveitarfélagsins. Hér er öflugt samfélag og fjölmörg tækifæri til áframhaldandi uppbyggingar. Ég hlakka til að kynnast íbúum, starfsfólki sveitarfélagsins, kjörnum fulltrúum og atvinnulífinu og vinna með þeim að því að móta sameiginlega framtíðarsýn fyrir Suðurnesjabæ,” er haft eftir Alexöndru í tilkynningunni.