Danska þingið greiddi í morgun atkvæði um nýjan varnarsamning við Bandaríkin og Grænland. Allir 109 þingmennirnir sem voru viðstaddir atkvæðagreiðsluna samþykktu samninginn.
Fyrr í þessum mánuði var þessi sami samningur samþykktur í atkvæðagreiðslu á grænlenska þinginu. Þar var hann umdeildari því Naleraq, einn af fimm flokkum sem eiga sæti á þinginu, var gagnrýninn á hann. Þar tóku 23 þingmenn þátt í atkvæðagreiðslu, 16 samþykktu, enginn var á móti en sjö sátu hjá.
Nú getur hann tekið gildi
Þar sem samningurinn þarf ekki samþykki Bandaríkjaþings, undirskrift forsetans dugar, er næsta skref að utanríkisráðuneyti Danmerkur sendi formlega staðfestingu til yfirvalda í Bandaríkjunum um að samningurinn megi taka gildi.
Leiðtogar Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands skrifuðu undir samninginn í New York 22. september.
Það var talsverður léttir þegar samningum var náð því Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði ítrekað hótað Grænlendingum yfirtöku.
Við undirritunina sagði Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landsstjórnarinnar, að samningurinn kæmi öllum vel og hann væri „win-win-win“.