Í tilkynningu starfandi skólastjóra til forráðamanna í gærkvöldi kom fram að tveir starfsmenn skólans sem hefðu talið sig vera í einrúmi hefðu sést kyssast í gegnum sandblásið gler.
„Skólastjórnendur hafa rætt við hlutaðeigandi og málið er til skoðunar í samráði við mannauðsskrifstofu skóla- og frístundasviðs,“ sagði í póstinum frá skólastjóra.
„Í kjölfarið var lögð áhersla á að starfsfólk væri sýnilegt á göngum skólans svo nemendur gætu leitað til þess ef þeir hefðu spurningar eða vildu ræða málið. Ekki var talið tilefni til að senda sérstakar upplýsingar um málið til allra foreldra. Þar sem fjölmiðlar hafa verið að spyrjast fyrir um málið teljum við þó rétt að gera stuttlega grein fyrir því og viðbrögðum skólans,“ segir þar enn fremur.
Nokkur viðbrögð spunnust á samfélagsmiðlum vegna fréttaflutnings enda mátti ráða af því að fullorðið fólk mætti ekki lengur kyssast án skaðlegra áhrifa fyrir börn og unglinga. Miðað við mynd sem nemandi í Hagaskóla tók af atvikinu og Vísir hefur undir höndum var ekki aðeins um koss að ræða. Myndin er tekin á gangi í skólanum og af stórum glugga sem vísir inn á skrifstofu í skólanum. Myndin er í talsverðri dreifingu á samfélagsmiðlum.
Á myndinni sjást útlínur starfsfólksins greinilega í gegnum rúðu sem er að stórum hluta sandblásin. Fólkið þekkist því ekki en neðri hluti glersins, sem er ósandblásinn, sýnir svartan sófa. Karlinn sést svo sitjandi eða liggjandi á sófanum en konan í uppréttri stöðu ofan á karlinum.