Van Gogh málaði Kastaníutré í blóma (fr. Chataigniers en fleurs) árið 1890, skömmu fyrir andlát sitt, í Auvers-sur-Oise í Frakklandi. Kaupandi verksins er William Acquavella, listaverkasafnari og eigandi Acquavella gallería, en verkið er dýrasta verk málarans sem selst hefur og dýrasta listaverk sem hefur selst á árinu.
Fyrir þetta var dýrasta verk van Gogh sem hefur selst opinberlega Aldingarður með grátviði sem seldist á 117,2 milljónir dala (um 135 milljónir dala á núvirði) á uppboði Christie's í New York árið 2022. Samkvæmt New York Times seldist hins vegar annað verk málarans, Le Zouave, á um 190 milljónir dala í einkasölu fyrir minna en ári síðan.
Neyddust til að selja verkið
Þýski útgefandinn Samuel Fischer keypti málverkið í París árið 1909 og fjölskylda hans seldi verkið svo árið 1936, tveimur árum eftir að hann lést. Erfingjar hans mótmæltu uppboði Sotheby's og sögðu fjölskyldu hans hafa neyðst til að selja verkið vegna fjárhagstaps af völdum stjórnar nasista.
Lögmaður fjölskyldunnar, Gunnar Schnabel, krafðist þess að Sotheby’s myndi sanna að verkið hefði verið selt á markaðsvirði á sínum tíma og að fjölskyldan hefði selt það ef ekki hefði verið fyrir fyrir pólitískt landslagið. Síðasti eigandi verksins á eftir Fischer var Blaquier-Arrieta-fjölskyldan sem keypti verkið árið 1975.
Sotheby's greindu frá því á þriðjudag að „samkomulag hefði náðst milli Blaquier-Arrieta-fjölskyldunnar og allra afkomenda Hedwigar og Samuels Fischer varðandi söluna á Kastaníutrjám í blóma eftir Vincent van Gogh.“
„Fjölskyldan vonar að töluverður áhugi almennings á málinu og snögg og sanngjörn afgreiðsla þess geti verið öðrum fjölskyldum, sem máttu þola ofsóknir af höndum nasistum, hvatning,“ sagði Schnabel við New York Times. Hann tók þó fram að það hefði ekki verið „nein kampavínsstemming“ á uppboðinu.
Erfingjar Fischer sögðust vera „þakklátir fyrir sanngjarnar viðræður og samstarf við Sotheby’s og Blaquier-Arrieta-fjölskylduna sem gerði það mögulegt að viðurkenna þjáningu Fischer-fjölskyldunnar á tíma nasista og heiðra sögu Giselu Berman Fischer af því að sækjast eftir réttlæti fyrir fjölskyldu sína.“