Fyrir tveimur dögum var neyðarstjórn Norðurorku í viðbragðsstöðu vegna hitaveitunnar. Íbúar voru beðnir um að hugsa vel um nýtingu á heitu vatni og láta til dæmis ekki renna í heita potta.
Í tilkynningu frá Norðurorku segir að nú sé staðan orðin góð og komin vel upp fyrir öryggismörk. Það hafi munað miklu að öflug borhola á Laugalandi komst aftur í vinnslu í gærkvöldi eftir langvinna bilun. Einnig var olíuketillinn við Mímisbraut gangsettur en það er alla jafna algjört neyðarúrræði.
„Í þessu tilviki var ákveðið að ræsa ketilinn áður en farið var í að skerða afhendingu til sundlauga, þar sem kominn var tími á að prófa hann. Slíkar prófanir eru gerðar með reglulegu millibili og þótti því tilvalið að ræsa hann í ljósi bágrar stöðu heita vatnsins í bænum, til að orkan yrði nýtt á sem allra bestan hátt. Sú aðgerð átti drjúgan þátt í því að staðan hélst í jafnvægi og fór ekki neðar,“ segir í tilkynningunni.
Notendur eru samt sem áður beðnir núna, líkt og alla aðra daga ársins, um að hugsa vel um nýtingu á heitu vatni á heimilum og vinnustöðvum.
„Staðan komst í gott jafnvægi þótt hún væri vel fyrir neðan öryggismörk, en eftir ákall Norðurorku til notenda stóð hún í stað og hækkaði jafnvel örlítið. Norðurorka þakkar viðskiptavinum, jafnt almenningi sem stórnotendum, fyrir góð viðbrögð,“ segir í tilkynningunni þar sem starfsfólki er sömuleiðis þakkað.