Úkraínumenn hafa á undanförnum dögum gert nokkrar árásir á brúna. Sá hluti hennar sem er ætlaður bílum er hruninn í sjóinn og umferð lesta hefur verið stöðvuð, samkvæmt yfirvöldum í Rússlandi, á meðan viðgerðir fara fram. Það er eftir að frekari árásir á lestarhlutann voru gerðar í gærkvöldi.
Sjá einnig: Gerðu aðra atlögu að brúnni
Kerch-brúin er nítján kílómetra löng og tengir Krímskaga, sem Rússar hernámu og innlimuðu ólöglega í rússneska sambandsríkið árið 2014, við meginland Rússlands. Opnað var fyrir umferð yfir brúna árið 2018 og er hún mikilvægur hlekkur í birgðakeðju Rússa.
Pútín sjálfur var sá fyrsti sem keyrði yfir brúna árið 2018 og hann gerði það einnig eftir að hún var löguð í kjölfar þess að bílasprengja skemmdi hana í október 2022.
Erfitt yrði fyrir Rússa að gera við brúna að þessu sinni vegna aukinnar árásargetu Úkraínumanna.
Þrátt fyrir það hét Pútín því á blaðamannafundi í dag að gert yrði við brúna og hélt því fram að hún væri eingöngu notuð í borgaralegum tilgangi og ekki til að flytja hergögn. Hann hét því einnig að láta Úkraínumenn finna til tevatnsins vegna árásanna.
„Eftir árásirnar á Krímbrúna, munum við ekki semja. Við munum svara þessum árásum og ég vil að allir viti af því,“ sagði Pútín í dag.
„Ég tel að viðbrögð okkar verði mun sársaukafyllri en það sem Kyiv-stjórnin gerði brúnni.“
Strax eftir fyrstu árásirnar á brúna gerðu Rússar frekari árásir á mikilvægar brýr í Kænugarði, eins og þeir höfðu gert áður. Undanfarnar vikur og mánuði hafa Rússar gert umfangsmeiri árásir en áður með skotflaugum og sjálfsprengidrónum á Úkraínu.
Úkraínumenn eru sérstaklega berskjaldaðir gagnvart skotflaugum vegna skorts á flugskeytum í loftvarnarkerfi sem geta skotið þær niður. Þá hafa Rússar tekið nýja þotuknúna gerð sjálfsprengidróna í notkun, sem erfiðara er að skjóta niður vegna þess hve hraðskreiðir þeir eru.