Í dómi Hæstaréttar, sem kveðinn var upp í gær, segir að í október 2023 hafi Samhentir fengið lagt lögbann við því að Papco héldi áfram framleiðslu, innflutningi, dreifingu, sölu og annarri ráðstöfun á plastpokum, merktum með auðkenninu „STERKIR“ en Samhentir hefðu um árabil framleitt og selt plastpoka merkta með auðkenninu „STERKUR“.
Félagið hafi í kjölfarið höfðað mál til staðfestingar á lögbanninu og til viðurkenningar á réttindum sínum.
Í dóminum segir að þrátt fyrir að orðið „sterkur“ væri lýsandi fyrir eiginleika plastpoka og auðkennið „STERKUR“ skorti sérkenni, yrði fallist á að heildarmynd merkisins „STERKUR Samhentir“ uppfyllti kröfur laga um vörumerki, þannig að það teldist skráningarhæft. Hins vegar hafi ekki þótt sýnt fram á að hætt væri við ruglingi milli þeirra merkja sem auðkenndu poka framleiðendanna tveggja.
Þá taldi Hæstiréttur að leggja yrði til grundvallar að vernd laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu tæki að jafnaði eingöngu til auðkenna sem uppfylltu lágmarkskröfur um sérkenni en af fyrirliggjandi gögnum yrði ekki ráðið að auðkennið „STERKUR“ uppfyllti þær kröfur.
Með vísan til heildarmyndar merkinga á pokum málsaðila, einkum þess að pokarnir væru skýrlega auðkenndir með firmaheiti hvors um sig, yrði heldur ekki talið sýnt fram á að hætt væri við því að villst yrði á þeim í skilningi fyrrnefnds ákvæðis. Papco hafi því verið sýknað af öllum kröfum Samhentra og Samhentir dæmdir til að greiða Papco fjórar milljónir króna í málskostnað á öllum dómstigum.