„Fyrst hló ég bara að þessari hugmynd að við myndum heimsækja alla helstu botna landsins til að fagna tveggja ára afmæli okkar og til að vekja athygli á því að við værum búin að vera með lægsta verðið samkvæmt ASÍ í tvö ár.“
„En hugmyndin sat í okkur og við ákváðum að slá til og fá Björk Guðmundsdóttur, leikkonu og spunasnilling sem hefur verið að vinna með okkur, til að koma með í þessa skrítnu afmælisferð,“ segir Birta Ósk Friðbertsdóttir, markaðsstjóri Prís, aðspurð um hugmyndina um ferðalagið á botna landsins.
Á botninum í 2 ár
„Það eru ekki margir sem geta montað sig af því að hafa verið á botninum í tvö ár, en við gerum það með glöðu geði,“ segir Birta. „Hjá okkur er botninn toppurinn.“
Prís varð tveggja ára 17. ágúst og á verðlagslínuriti ASÍ hefur lína Prís legið neðst frá opnun, í meira en 24 mánuði í röð. Það er sá árangur sem starfsfólkið er stoltast af og því lá beint við að fagna honum. Verðlagseftirlit ASÍ fylgist með verði í matvöruverslunum og ber verslanirnar saman. Reglulega birtast línurit og því neðar sem lína verslunar liggur, því ódýrara er að versla þar og frá opnun hefur Prís verið á botninum.
„Það erum ekki við sem segjum að við séum ódýrust, það stendur svart á hvítu frá óháðum aðila,“ segir Birta alvarlega.
„Loforðið okkar er einfalt: við ætlum alltaf að vera ódýrust og halda samkeppninni á tánum. Fólk finnur fyrir hverri krónu í matarinnkaupunum og þess vegna tökum við þetta loforð mjög alvarlega.“
Heimsóknin á botna landsins
Til að halda upp á tímamótin léku Birta og Prísararnir sér með orðið „botn“ á alla kanta. Niðurstaðan varð lítil þáttaröð þar sem Birta og Björk bregða sér í hlutverk Prísaranna og heimsækja botna víðs vegar um landið. Myndböndin eru farin að birtast á samfélagsmiðlum Prís og þar er hægt að fylgjast með ferðalögum þeirra Birtu og Bjarkar um landið.
„Ef maður er stoltur af botninum, af hverju ekki að heimsækja hann?“ segir Birta og hlær. „Það var ótrúlega gaman að þvælast með Björk á milli botna. Við hlógum mikið og það skilar sér vonandi í þáttunum.“
Með þeim voru vaskir tökumenn, Elvar og Fróði hjá Plan A Media, sem gerðu ferðina enn skemmtilegri.
Næstum 600 ár á botninum
Ein ferðin lá vestur á firði, að bænum Botni í Súgandafirði, við Botnsdal. Jörðin stendur innst í firðinum, bókstaflega í botni hans, og þar rennur einnig Botnsá. Söguheimildir eru fyrir því að þarna hafi verið búskapur í næstum því 600 ár.
„Virðulegri og fallegri botn er varla hægt að finna,“ segir Birta og bætir við: „Ég fór oft á Sæluhelgina í firðinum á sumrin þegar ég var lítil en ég á ættir að rekja á Súgandafjörð.“
Á Botni býr Helga bóndi og þangað var ferðinni heitið. Prísararnir mættu með fulla Príspoka af alls kyns góðgæti úr versluninni handa henni.
„Við giskuðum á að hún elskaði botna jafn mikið og við, svo við ákváðum að færa henni alls kyns botna: pítsubotna, kökubotna og allt þar á milli.
„Við tókum líka með hluti sem hún getur ekki ræktað sjálf og íslenska sveitin er ekki enn farin að framleiða, eins og melónur, snakk, nammi og allt sem þarf í gott kósýkvöld: maska, krem og kerti.“
„Helga tók bókstaflega á móti okkur eins og höfðingi. Við vorum alveg orðlausar eftir þessa stórkostlegu heimsókn og hún var alsæl með vörurnar,“ segir Birta.
„Hún veit hvernig það er að vera á botninum. En við eigum smá í land með að ná henni, en við erum á góðri leið.“
Þeim þótti forvitnilegast að vita hvernig tilfinning það væri að vera á botninum öll þessi ár. Aðspurð hverju Helga hefði svarað segir Birta að hún hafi varað við því að færast of mikið í fang og að nýta hlutina vel, sem voru góð ráð fyrir okkur sem viljum passa vel upp á aurinn til að geta boðið alltaf besta prísinn.
„Á meðan á heimsókninni stóð rákum við augun í torfbæ úti á túni og þegar við spurðum Helgu út í hann þá stakk hún upp á að við myndum bara kíkja inn í bæinn. Þarna átti víst landnámsmaðurinn Hallvarður Súgandi heima en hann var heygður upp á heiði og Fornminjafélag Súgandafjarðar reisti þennan skála.“
„Það sem gerðist svo þegar við stigum inn í torfbæinn hans Hallvarðs var alveg yfirnáttúrulegt. En það kemur auðvitað fram í litlu þáttaröðinni sem við gerðum og er að birtast í bútum á öllum samfélagsmiðlum Prís,“ segir Birta sposk á svip.
Pop-up Prís í botni Hvalfjarðar
Prísararnir lögðu líka leið sína í Hvalfjörð. Þar keyrðu þær á litlum sendibíl upp að Botnsskála og opnuðu Pop-up-búð Prís.
„Úrvalið var hlægilega lítið, en það var allavega ódýrt!“ segir Birta. „Þessi Prísbúð var ekki stór en hún stóð svo sannarlega undir nafni. En þarna stóðum við og biðum eftir að einhver myndi keyra fram hjá. Eftir smá tíma vorum við farnar að tuða yfir Hvalfjarðargöngunum fyrir að hafa af okkur öll viðskiptin,“ segir Birta og hlær. Svo bætir hún við, alvarleg í bragði:
„Að öllu gríni slepptu er botnbaráttuhugur í okkur hjá Prís. Markmiðið okkar er að bæta hag heimilanna í landinu með því að bjóða upp á lægsta verðið á matvöru. Við erum búin að standa við það frá upphafi og erum rétt að byrja.“