Breskur, sjálfstætt starfandi fyrirtækjaráðgjafi réði lögfræðistofuna Garfield AI til að innheimta fyrir sig gjaldfallna skuld , sem fól í sér að senda lögformlegt innheimtubréf og höfða mál í framhaldinu, þegar innheimtan skilaði ekki árangri.
Lögfræðiþjónustuan vann málið fyrir hönd síns skjólstæðings, meðal annars með því að fá gagn-málsókn hins stefnda fyrirtækis vísað frá. Þetta væri ekki í frásögur færandi nema fryir það að Garfield AI er gervigreindarlögfræðistofa þar sem gervigreind sá alfarið um allan málatilbúnað, þótt mennskur málafærslumaður flytti málið í réttinum.
Þetta er fyrsta málið sem slík stofa vinnur fyrir breskum rétti. Annar stofnenda og eigenda hennar, Philip Young, segir þetta marka tímamót fyrir einstaklinga og minni fyrirtæki, sem iðulega sjái sig knúin til að afskrifa útistandandi skuldir þar sem þau sjái fram á að kostnaður við innheimtu og málshöfðun geti hæglega orðið meiri en það sem þau gætu mögulega innheimt.
Gervigreindin sá um allt nema að flytja málið
Fyrirtæki eins og Garfield - gervigreindarlögfræðiaðstoð og ráðgjöf - fengu í fyrra heimild til að innheimta skuldir frá 30 og upp í 10.000 pund og fara með innheimtuna alla leið í réttarsal. Gervigreindin undirbýr málið að öllu leyti, en lokahnykkurinn, málflutningurinn fyrir rétti, var í höndum lögmanns af holdi og blóði.
Í þessu tilfelli samdi gervigreindin Garfield innheimtubréf, véfengdi mótkröfu hins stefnda (sem nýtti sér þjónustu lögfræðinga), sótti og skráði vitnisburð fjögurra vitna ásamt fjölda annarra gagna, sem hinn mennski málafærslumaður studdist við í réttarhöldunum, sem haldin voru um miðjan maí.
Gervigreind gæti mögulega afgreitt einföld mál án aðkomu lögmanna og dómara
Stefán A. Svensson formaður Lögmannafélags Íslands segir gervigreindina þegar farna að gegna ákveðnu hlutverki í íslenska réttarkerfinu eins og annars staðar. Þróunin sé mjög hröð og nokkrar íslenskar vefsíður, ekki ósvipaðar hinni bresku Garfield, bjóði þegar upp á lögræðiráðgjöf og þjónustu af ýmsum toga. Þá noti íslenskir lögfræðingar sér gjarnan gervigreind þar sem við á - og jafnvel víðar.
Hann segir gervigreindina öflugt verkfæri, en að hún dugi skammt í flóknum ágreiningsmálum. Hins vegar megi mögulega hugsa sér framtíð, þar sem einföld, klippt og skorin ágreiningsmál verði útkljáð af gervigreindarsækjanda, verjanda og dómara.
Rætt var við Stefán í Speglinum á miðvikudag. Hlusta má á viðtalið í spilaranum hér að ofan.