Því var ákaft fagnað þegar manni var bjargað í dag úr húsarústum eftir jarðskjálftana í Venesúela. Hundruð björgunarliða frá sjö löndum komu að björguninni.
Hernán Alberto Gil Flores, 43 ára öryggisvörður, var í vinnunni þegar stóru skjálftarnir riðu yfir á miðvikudag í síðustu viku.
Björgunarsveitir höfðu náð sambandi við hann og fært honum vatn. Björgunin var flókin og tók nokkra sólarhringa.
Í morgun komust björgunarliðar í um metra fjarlægð frá honum og eftir hádegi náðu þeir honum undan rústunum. Hann var fluttur umsvifalaust á sjúkrahús.
Nærri 2.300 hafa fundist látin og enn er tuga þúsunda saknað.