Leitaði vikulega á bráðamóttöku í fimm ár
Ný skýrsla Rótarinnar bendir til þess að komur heimilislausra á bráðamóttöku Landspítalans endurspegli „ekki bráð læknisfræðileg veikindi heldur aðstæður sem tengjast félags- og kerfislægum þáttum, svo sem húsnæðisóöryggi, skorti á dagþjónustu og takmörkuðu aðgengi að geð- og félagsþjónustu“.
Heimilislaus einstaklingur leitaði að jafnaði vikulega á bráðamóttökuna undanfarin fimm ár. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Rótarinnar.
Þar kemur fram að heimilislausir leita meðal annars á bráðamóttöku vegna þess að þeir hafa ekki í önnur hús að venda og úrræði skortir fyrir þennan hóp. Flestar komur eiga sér stað á meðan neyðarskýli borgarinnar voru lokuð, en þau eru opin frá 17 síðdegis og til klukkan tíu að morgni næsta dags.
Hátt hlutfall koma sé án innlagnar, heildarkostnaður verulegur og byrði vegna geð- og vímuefnatengds vanda mikil. „Þetta mynstur bendir til þess að bráðamóttakan gegni í mörgum tilfellum hlutverki sem viðkomustaður fyrir einstaklinga með flókinn og langvinnan vanda, þar sem skortur er á samfellu í þjónustu og viðeigandi úrræðum utan spítalans,“ segir í skýrslunni.
Í meðfylgjandi yfirlýsingu segir að Rótin hafi um árabil bent á að fólk í heimilisleysi mæti margvíslegum þröskuldum í heilbrigðiskerfinu. Lítið …