Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir vísbendingar um þegjandi samhæfingu á eldsneytismarkaði. Á fákeppnismarkaði viti fyrirtæki mjög mikið um samkeppnisaðila og hvernig skynsamlegt sé að bregðast við samkeppni.
„Oft dregur úr verðsamkeppni og fyrirtæki fara að keppa í öðru eins og þjónustu,“ segir Páll Gunnar Pálsson forstjóri. Samkeppniseftirlitið hefur olíumarkaðinn til rannsóknar. Meðal annars er til skoðunar hvort tímabundin lækkun virðisaukaskatts í maí hafi skilað sér að fullu.
Í nýju skjali Samkeppniseftirlitsins kemur fram að álagning á bensín og dísel hafi hækkað mikið frá árinu 2022. Þá hafi álagningin hækkað í lok seinasta árs, stuttu áður en opinber gjöld voru felld niður í tengslum við upptöku kílómetragjalds.
Sama gildi apríllok, áður en tímabundin lækkun virðisaukaskatts gekk í gegn. Þá hækkaði verð hjá nokkrum félögum.
„Það er það sem við munum leita skýringa á hjá olíufélögunum. Það stendur uppi á félögin að útskýra þetta betur fyrir okkur,“ segir Páll. Þá segir hann að eldsneytisverð á Íslandi fylgi ekki heimsmarkaðsverði með sama hætti og hjá flestum öðrum ríkjum.
Aðspurður segir Páll að umræðuskjalið styðji áhyggjur FÍB, ASÍ og fleiri um að lækkun heimsmarkaðsverðs skili sér hægar í útsöluverð eldsneytis heldur en hækkun heimsmarkaðsverðs.