Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir þeim níu sem hafa verið handteknir í tengslum við umfangsmikið kókaínsmygl til Straumsvíkurhafnar gildir til 8. júlí. Að minnsta kosti fimm þeirra hafa kært úrskurðinn.
Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
106 kílóum af kókaíni var smyglað með skipinu Koznitza sem kom frá Brasilíu í síðustu viku. Málið er það stærsta sinnar tegundar á Íslandi.
Meðal þeirra sem voru handteknir eru Brasilíumenn, Rúmeni og að minnsta kosti þrír Íslendingar.
Ævar Pálmi segir ekki enn liggja fyrir hvort farið verði fram á áframhaldandi gæsluvarðhald.